Aðgerðir gegn spillingu og mútubrotum
Íslensk stjórnvöld taka þátt í alþjóðlegu samstarfi gegn spillingu og mútum. Liður í því samstarfi er að bregðast við tilmælum erlendis frá vegna innleiðingar alþjóðasamninga um aðgerðir á þessu sviði. Verkefni stjórnvalda lúta m.a. að undirbúningi lagasetningar og setningu leiðbeinandi reglna auk þátttöku í alþjóðlegu og innlendu samstarfi. Markmiðið er að stuðla að góðri stjórnsýslu og heilbrigðu atvinnulífi og sporna þannig gegn þeim skaða sem spilling veldur.
Ísland er aðili að GRECO, ríkjahópi gegn spillingu innan Evrópuráðsins, samningi Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) um baráttu gegn mútugreiðslum til erlendra opinberra starfsmanna í alþjóðlegum viðskiptum og Sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu. Stjórnvöld upplýsa þessar stofnanir reglulega um íslenska löggjöf, stjórnsýslu og annað sem máli skiptir svo hægt sé að leggja mat á frammistöðu Íslands og vinna að frekari úrbótum.
Samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu (UN Convention against Corruption - UNCAC) var samþykktur á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna árið 2003. Alþingi samþykkti aðild Íslands að samningnum árið 2010 og hann gekk í gildi hér á landi þann 1. mars 2011.
Sjá einnig:
Lagagrunnur
Almenn hegningarlög, nr. 19/1940Lög um opinber innkaup, nr. 120/2016Stjórnsýslulög, nr. 37/1993Upplýsingalög, nr. 140/2012Samningur SÞ
Samningur Sameinuðu þjóðanna gegn spillinguÞingsályktunartillaga um aðild Íslands að spillingarsamningi Sameinuðu þjóðanna, með athugasemdumBakgrunnur Samnings SÞ gegn spillinguSamningur OECD
Samningur gegn erlendum mútubrotum - á enskuAlþjóðlegar nefndir - skýrslur
Skýrslur til alþjóðlegra nefndaSkýrslur frá alþjóðlegum nefndumGagnlegar krækjur
Stýrihópur um eftirfylgni við innleiðingu á samningum gegn spillingu og mútumGRECO Samtök ríkja gegn spillingu á vegum EvrópuráðsinsVinnuhópur OECD - Efnahags- og framfarastofnunarinnar - um mútur í alþjóðlegum viðskiptumVef Fíkniefna- og sakamálaskrifstofu Sameinuðu Þjóðanna (UN Office on Drugs and Crime) UNODCAlþjóðabankinnSiðareglur fyrir ráðherra, starfsmenn Stjórnarráðs Íslands og starfsmenn ríkisinsSiðareglur fyrir starfsmenn dómstólaHagsmunaskráning hæstaréttardómaraSiðareglur alþingismannaHagsmunaskráning alþingismannaRíkisendurskoðunUmboðsmaður AlþingisFrjáls félagasamtök
Gagnsæi - samtök gegn spillinguTransparency InternationalGlobal WitnessGlobal Initiative Against Organized CrimeFréttir
Dómsmálaráðuneytið, Forsætisráðuneytið
17.12.2025
Dómsmálaráðuneytið
Endurskoðuð stefna stjórnvalda gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka
24.09.2025
Dómsmálaráðuneytið
Dómsmálaráðherra mælir fyrir fimm mikilvægum málum á Alþingi
23.09.2025
Dómsmálaráðuneytið
Skilvirkni aukin í endurheimt ávinnings af glæpum
27.02.2025
Utanríkisráðuneytið
Ráðherra ávarpaði fund allsherjarþingsins gegn spillingu
03.06.2021
Aðgerðir gegn brotastarfsemi