Hari

Endurskoðun á ramma peningastefnu

Fjármálastöðugleiki hafi forgang á verðstöðugleika

Helstu tillögur:

  • Fjármálastöðugleiki hafi forgang á verðstöðugleika ef þær aðstæður koma upp að ógn skapist gagnvart hinum fyrrnefnda.
  • Ábyrgð Seðlabanka Íslands verði aukin. Bankinn beri einn ábyrgð á þjóðhagsvarúð og eindavarúð í stað þess að ábyrgðin skiptist á milli Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins.
  • Verðbólgumarkmið Seðlabankans undanskilji húsnæðisverð.
  • Aðstoðarseðlabankastjórar verði tveir, annar með áherslu á fjármálastöðugleika og hinn með áherslu á hefðbundna peningastefnu.
    Nefnd um ramma peningastefnu leggur til 11 tillögur um umgjörð varúðartækja, endurbætt verðbólgumarkmið, markvissari beitingu stjórntækja Seðlabankans og ákvörðunarferli peningastefnunnar Í niðurstöðum sínum leggur nefndin áherslu á að sérhver peningastefna hafi sína kosti og galla. Þjóðin hafi búið við þrálátan óstöðugleika í peningamálum þar sem leikreglum hafi ekki verið fylgt. Mikilvægast sé að farið verði eftir þeim leikreglum sem hvert fyrirkomulag krefst á hverjum tíma óháð því hvaða stefna er valin.

Að mati nefndarinnar er ekkert sem bendir til annars en að verðbólgumarkmið geti gengið upp hérlendis með sambærilegum hætti og hefur tekist á Norðurlöndum. Það ætti að styrkja grundvöll peningastefnunnar með markvissari beitingu þjóðhagsvarúðar þannig að Seðlabanki Íslands beri einn ábyrgð á fjármálastöðugleika með sama hætti og bankinn er nú einn í ábyrgð fyrir verðstöðugleika. Nefndin telur hins vegar að myntráð feli í sér óásættanlega áhættu fyrir fjármálastöðugleika og mælir því ekki með þeirri leið.

Nefnd um ramma peningastefnu var skipuð í mars 2017. Í nefndinni áttu sæti þrír hagfræðingar; Dr. Ásgeir Jónsson, formaður, Ásdís Kristjánsdóttir og Illugi Gunnarsson. Nefndin fékk eftirtalda hagfræðinga til að veita stjórnvöldum ráðgjöf um peninga- og gengisstefnu til framtíðar:

  • Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóra Írlands, og Athanasios Orphanides, prófessor við MIT-háskóla og fyrrum seðlabankastjóra Kýpur – mat á reynslu af verðbólgumarkmiði fyrir Ísland og reifa hugsanlegar umbætur.
  • Sebastian Edwards, prófessor við UCLA-háskóla - mat á öðrum valmöguleikum peningastefnu fyrir Ísland en núverandi verðbólgumarkmið.
  • Kristin Forbes, prófessor við MIT-háskóla – skoðun á beitingu fjármálastöðugleikatækja.
  • Lars Jonung, prófessor við Háskólann í Lundi og Fredrik N. G. Andersson dósent við sama skóla - umfjöllun um íslenska peningastefnu í norrænum samanburði.

Skýrsla nefndar um ramma peningastefnu

**Framtíð íslenskrar peningastefnu**

Viðaukar:

-

Analytica: CPI Formulation and Owner-Occupied Housing User CostMarías Halldór Gestsson: An analysis of CBs inflation forecast errorsMarías Halldór Gestsson: Efficient monetary policy frontier for IcelandMarías Halldór Gestsson: The effects of CBs policy rate on interest rates in Iceland

Skýrslur erlendra sérfræðinga:

-

Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóri Írlands, og Athanasios Orphanides, prófessor við MIT-háskóla og fyrrum seðlabankastjóri Kýpur - meta reynsluna af verðbólgumarkmiði fyrir Ísland og reifa hugsanlegar umbæturSebastian Edwards, prófessor við UCLA-háskóla - meta aðra valmöguleika peningastefnu fyrir Ísland en núverandi verðbólgumarkmiðKristin Forbes, prófessor við MIT-háskóla - skoða beitingu fjármálastöðugleikatækjaLars Jonung, prófessor við Háskólann í Lundi og Fredrik N. G. Andersson dósent við sama skóla - fjalla um íslenska peningastefnu í norrænum samanburði

Kynningarefni á ráðstefnu um framtíð íslenskrar peningastefnu 6. júní 2018

Framtíð íslenskrar peningastefnu - Ásgeir Jónsson, formaður nefndar um endurskoðun á ramma peningastefnuMacroprudential policy after the crisis -  Kristin J. Forbes, prófessor við MIT-háskólaIceland’s monetary policy regime - Patrick Honohan, fyrrum seðlabankastjóri ÍrlandsMonetary policy in Iceland: An evaluation -  Sebastian Edwards, prófessor við UCLA háskólaLessons for Iceland from the monetary policy of Sweden - Fredrik N. G. Andersson og Lars Jonung, prófessorar við Háskólann í Lundi