Fjárhagsleg afdrif fólks sem bjó eða starfaði í Grindavík
Fjármála og efnahagsráðuneytið safnar mánaðarlegum upplýsingum um fjárhagsleg afdrif fólks sem hafði búsetu eða starf í Grindavík í október 2023 og veltu fyrirtækja í Grindavík. Upplýsingunum er safnað í þeim tilgangi að fylgjast með hvernig fólki sem orðið hefur fyrir beinum áhrifum af jarðhræringum og eldgosum við bæinn reiðir af í kjölfarið.