15. október 2024Utanríkisráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Ísland og Brasilía undirrita tvísköttunarsamning
Tvísköttunarsamningur milli Íslands og Brasilíu var undirritaður í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í gær. Samningurinn, sem nær til tekjuskatta, var undirritaður af Bergdísi Ellertsdóttur, sendiherra og staðgengli ráðuneytisstjóra, fyrir hönd Íslands og Rodrigo de Azeredo Santos, sendiherra, fyrir hönd Brasilíu.