12. mars 2021Forsætisráðuneytið, Heilbrigðisráðuneytið, Innviðaráðuneytið, Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið, Atvinnuvegaráðuneytið, Dómsmálaráðuneytið, Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Undirbúa vernd mikilvægra innviða vegna mögulegra eldsumbrota
Ríkisstjórnin ákvað á fundi sínum í dag að fela hópi ráðuneytisstjóra að leiða nauðsynlega vinnu við undirbúning verndar mikilvægra innviða vegna mögulegra eldsumbrota á Reykjanesi. Huga þarf að hröðum og öruggum viðbrögðum við mögulegum eldsumbrotum, styðja við vinnu heimaaðila og tryggja um leið fyllsta öryggi íbúa.