Athugið: Þessi frétt er meira en 5 ára gömul.

21 júní 2019

/

Utanríkisráðuneytið

Loftferðasamningur við Úkraínu áritaður

{image.Description}
Sendinefnd Úkraínu naut íslenskrar rjómablíðu. Frá vinstri: Danylo Davydov, Flugmálastofnun Úkraínu, Kristín Helga Markúsdóttir, Samgöngustofu, Iryna Shevchuk, Flugmálastofnun Úkraínu, og Benedikt Ásgeirsson, sendiherra. Á myndina vantar William Frey Huntingdon-Williams.

Sendinefnd frá Úkraínu sótti fund með sameiginlegu loftferðateymi utanríkisráðuneytisins, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins og Samgöngustofu 20. júní 2019. Benedikt Ásgeirsson, sendiherra, leiddi fyrir hönd Íslands.

Í lok fundarins var áritaður lofferðasamningur milli Íslands og Úkraínu. Samningurinn gildir með tímabundnum hætti um loftferðir á milli ríkjanna þar til hann verður undirritaður. Fundurinn í dag markar því ákveðin tímamót í samningaviðræðum ríkjanna á sviði loftferðamála en með þessu skrefi er opnað á nýja möguleika fyrir aðila í farþega- eða vöruflugi.