05 september 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Einföldun á jafnlaunakerfi: Minni kostnaður og aukin skilvirkni fyrir atvinnulífið
Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp í haust sem felur í sér mikla einföldun á skyldu til jafnlaunavottunar. Breytingin felur í sér að skylda til jafnlaunavottunar verði aflögð í núverandi mynd. Í stað kemur einfaldari leið til að tryggja að atvinnurekendur sýni fram á launajafnrétti á vinnumarkaði.
„Fyrirtæki eiga að tryggja jöfn laun fyrir jafn verðmæt störf, en stjórnsýslan má ekki vera flókin eða íþyngjandi. Með þessum breytingum tryggjum við sama markmið – launajafnrétti – en með mun einfaldari og hagkvæmari hætti,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Áfram verður skýr skylda fyrir fyrirtæki og stofnanir af tiltekinni stærð að skila inn gögnum til að sýna fram á að laun byggist á málefnalegum sjónarmiðum og þau séu ákvörðuð á sama hátt, óháð kyni. Um er að ræða breytingu á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna og lögum um stjórnsýslu jafnréttismála.
Skylda til innleiðingar jafnlaunavottunar var lögfest árið 2017. Rúm átta ár eru liðin frá innleiðingunni og því ástæða til að endurskoða regluverkið með tilliti til reynslunnar og ábendinga sem fram hafa komið.
Frumvarpið byggir meðal annars á tillögum starfshóps um hagræðingu í ríkisrekstri og hefur verið í unnið í samráði við Jafnréttisstofu.
Veruleg hagræðing fyrir atvinnulífið
Markmið frumvarpsins er tvíþætt; að tryggja áframhaldandi framgang jafnréttis kynjanna á vinnumarkaði og að draga verulega úr kostnaði og umsýslu sem núverandi kerfi hefur skapað fyrir atvinnulífið án þess að hvikað verði frá markmiðum um launajafnrétti.
Helstu breytingar eru:
- Skilvirkara ferli: Fyrirtæki senda gögn rafrænt í gegnum þjónustugátt, sem einfaldar verklag og dregur úr tvíverknaði.
- Minni kostnaður: Kostnaðarsamt og flókið vottunarferli hverfur úr lögunum, sem sparar fyrirtækjum og stofnunum umtalsverðar fjárhæðir.
- Samræmi og einföldun: Sömu reglur munu gilda á bæði almenna og opinbera vinnumarkaðnum.
- Skýr markmið: Launajafnrétti helst ófrávíkjanlegt markmið, en leiðin verður einfaldari og í takt við aðferðir annarra OECD-ríkja.
Eftirlitshlutverk Jafnréttisstofu verður áfram óbreytt.
Með þeim breytingum sem frumvarpið boðar er komið til móts við ábendingar úr atvinnulífinu um að núverandi fyrirkomulag hafi verið bæði kostnaðarsamt og óþarflega flókið, án þess að draga úr markmiðum jafnréttislaga um launajafnrétti.
Áhersla á einföldun og skilvirkni í hagræðingarverkefnum
Dómsmálaráðuneytið hefur undanfarna mánuði unnið að umfangsmiklum hagræðingarverkefnum í samræmi við ákvörðun ríkisstjórnarinnar um hagsýni í ríkisrekstri. Verkefnin miða að einföldun, aukinni skilvirkni og betri nýtingu fjármuna.
„Ég sá fljótt við komu mína í ráðuneytið að það væri hægt að taka til og einfalda. Stjórnsýslan er ekki undanskilin gagnrýni og við eigum að breyta þegar það skilar árangri. Með þessu erum við ekki bara að hagræða heldur stígum við skref til einfaldari og betri þjónustu til almennings,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra.
Hagsýni í ríkisrekstri er eitt af meginmarkmiðum ríkisstjórnarinnar og áhersla er lögð á hagræðingu og einföldun stjórnsýslu. Í janúar var efnt til samráðs við almenning, ríkisstofnanir og ráðuneyti þar sem ríkisstjórnin óskaði eftir tillögum að hagræðingar- og umbótaverkefnum. Starfshópur um hagræðingu í ríkisrekstri vann úr tæplega fjögur þúsund umsögnum og lagði að lokum fram um sextíu metnaðarfullar tillögur til hagræðingar.
Vinnuhópur hefur síðan í vor unnið að framkvæmd tillagna hópsins og fjölda verkefna ýtt úr vör sem ráðuneytum var falið að klára á kjörtímabilinu.
Tiltekt hafin í dómsmálaráðuneytinu
Með því að einfalda kerfi og ryðja úr vegi óþarfa flækjum næst fram hagræðing sem skilar bæði betri og hagkvæmari þjónustu við almenning. Margar aðgerðanna eru vel á veg komnar og einu verkefni er þegar lokið.
Verkefnin eru fjölbreytt og hér að neðan má sjá nokkur sem eru í vinnslu í ráðuneytinu:
- Breytingar á útlendingalögum – Breytingar á borð við afnám svokallaðrar 18 mánaða reglu og heimild til afturköllunar alþjóðlegrar verndar sem miða meðal annars að því að samræma reglur við löggjöf á Norðurlöndum. Þær fela í sér hagræði og aukna skilvirkni.
- Sameining sýslumannsembætta – Markmið með sameiningu eru skýr um framfarir, hagræðingu og að efla byggðir landsins
- Meðferð bótakrafna – Dómsmálaráðherra hyggst leggja fram frumvarp sem leggur til einfaldari málsmeðferð vegna bóta á grundvelli sakamála.
- Samræmi í opinberum innkaupum – Verkefni í undirbúningi sem miðar að því að samræma verklag við innkaup ríkisins, fyrst á sviði lögreglu, með það að markmiði að nýta betur sameiginlegan innkaupakraft ríkisins og auka skilvirkni.
- Endurskoðun þjónustu- og notendagjalda - Kortlagning á þjónustu-, skrásetningar- og notendagjöldum innan málefnasviða ráðuneytisins.
- Fækkun nefnda og aukinn samrekstur – Í samstarfi við forsætisráðuneyti er unnið að endurskoðun á nefndarstarfi með það að markmiði að draga úr tvíverknaði og auka skilvirkni.
- Gjaldskrárhækkun vegna dvalarleyfa – Lagt er til að hækka gjaldskrá fyrir umsóknir um dvalarleyfi og ríkisborgararétt til samræmis við Norðurlöndin.
Hagræðingarverkefni dómsmálaráðuneytisins verða kynnt með ítarlegri hætti samhliða framlagningu mála á Alþingi.