24 september 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Ein öflug stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála – lagafrumvarp í samráðsgátt ​

{image.Description}
Hugi Ólafsson

Inga Sæland, félags og húsnæðismálaráðherra, hefur birt drög að frumvarpi í samráðsgátt stjórnvalda þar sem lagt er til að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar verði sameinuð. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar.

Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Lagt er til að starfsemin verði sameinuð þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renni inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að heiti stofnunarinnar verði breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.

Sameiningunni er ætlað að auka bolmagn hins opinbera í skipulagsmálum og ná bæði fram samlegðaráhrifum og meiri samþættingu málaflokka á sama sviði. Sameiningunni er einnig ætlað að mæta auknu ákalli um yfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda.

„Við í ríkisstjórninni höfum lagt ríka áherslu á hagsýni í ríkisrekstri. Að sameina fámennar stofnanir við aðrar stærri er liður í því. En við viljum ekki bara sameina til að sameina heldur til að ná fram því besta í hverjum málaflokki. Almenn sátt er um tillöguna um sameiningu starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar vegna þess að hún mun einfaldlega skila okkur enn öflugri stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.