09. júl. 2026Félags- og húsnæðismálaráðuneytið, Skipulagsmál, Húsnæðis- og mannvirkjamál, Hagsýn í rekstri
Mælti fyrir frumvarpi um eina öfluga stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinist. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar. Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Sameiningunni er ætlað að auka bolmagn hins opinbera í skipulagsmálum og ná bæði fram samlegðaráhrifum og meiri samþættingu málaflokka á sama sviði.