Brunavarnir
Stjórnvöld hafa það hlutverk að vernda líf og heilsu manna, eignir og umhverfi með því að tryggja fullnægjandi eldvarnaeftirlit, forvarnir og viðbúnað við eldsvoðum.
Þetta er meðal annars gert með ákvæðum í lögum og reglugerðum um brunavarnir í mannvirkjum, eldvarnaeftirlit, brunaeiginleika byggingarefna og útgáfu á starfsleyfum þjónustuaðila. Þá er lögbundið virkt slökkvistarf á landinu sem Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun hefur reglubundið eftirlit með auk þess sem skylt er að gera brunavarnaáætlanir fyrir starfssvæði allra slökkviliða landsins.
Sjá einnig:
Húsnæðis- og mannvirkjamál