Húsnæðislán

Tilgangur laga um húsnæðismál er að stuðla að því með lánveitingum og skipulagi húsnæðismála að landsmenn geti búið við öryggi og jafnrétti í húsnæðismálum og að fjármunum verði sérstaklega varið til þess að auka möguleika fólks til að eignast eða leigja húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Samkvæmt lögunum skal Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun annast stjórn og framkvæmd húsnæðismála. Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem veitir einstaklingum, sveitarfélögum, félögum og félagasamtökum húsnæðislán til íbúðarkaupa og byggingarframkvæmda. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun er fjárhagslega sjálfstæður og stendur undir lánveitingum og rekstri með eigin tekjum.