Húsnæðisbætur
Markmið laga um húsnæðisbætur er að lækka húsnæðiskostnað efnaminni leigjenda með greiðslu húsnæðisbóta vegna leigu á íbúðarhúsnæði.
Sveitarfélögin önnuðust afgreiðslu húsaleigubóta til einstaklinga þar til lög um húsnæðisbætur öðluðust gildi 1. janúar 2017. Húsnæðis- og mannvirkjastofnun annast nú afgreiðslu húsnæðisbóta.
Sveitarfélögum er skylt að veita sérstakan húsnæðisstuðning samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga. Sveitarfélögin annast afgreiðslu sérstaks húsnæðisstuðnings með hliðsjón af [leiðbeinandi reglum um framkvæmd stuðningsins og viðmiðunarfjárhæðum](https://www.stjornarradid.is/library/01--Frettatengt---myndir-og-skrar/VEL/Leiðbeinandi reglr um sérstakan húsnæðisstuðning sveitarfélaga 2018.pdf) sem ráðherra setur.
Unnt er að sækja um húsnæðisbætur rafrænt með einföldum hætti á vef húsnæðisbóta.
Þar er einnig að finna nánari upplýsingar umsóknarferlið auk þess sem þar má finna umsóknareyðublað vegna umsókna á pappírsformi.
Frekari upplýsingar um húsnæðisbætur má nálgast á vefnum hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun.
Sjá einnig:
Lög
Húsaleigulög nr. 36/1994Lög um húsnæðisbætur nr. 75/2016Reglur og reglugerðir
Reglugerð um húsnæðisbætur nr. 1200/2016Reglur um sérstakan húsnæðisstuðningReglugerðir um húsaleigumálHúsaleigusamningar
Húsaleigusamningur um íbúðarhúsnæði (fyrirmynd) og fleiri eyðublöð tengd húsnæðismálumReiknivél húsnæðisbóta
Reiknivél húsnæðisbótaHúsnæðis- og mannvirkjamál