Leyfishafar

Eignaskiptayfirlýsingar

Samkvæmt lögum um fjöleignarhús mega þeir einir taka að sér að gera eignaskiptayfirlýsingar sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi ráðherra. Leyfið er gefið út til fimm ára og auglýsing um veitingu leyfis og leyfissviptingu eru birt í Lögbirtingablaðinu.

Listi yfir leyfishafa til að gera eignaskiptayfirlýsingarUmsókn um leyfi til að gera eignaskiptayfirlýsingar eða endurnýjun slíks leyfis

Leigumiðlanir

Starfsheiti þess sem rekur leigumiðlun er leigumiðlari. Þeim einum sem hlotið hafa til þess sérstakt leyfi ráðherra er heimilt að reka miðlun með leiguhúsnæði sem XV. kafli húsaleigulaga og reglugerða um leigumiðlun nr. 675/1994 taka til í því skyni að koma á leigusamningi eða annast framleigu eða skipti á leiguhúsnæði.

Listi yfir leyfishafa til að reka leigumiðlunUmsókn um leyfi til að reka leigumiðlun eða endurnýjun slíks leyfis

Merkjalýsingar

Samkvæmt lögum um skráningu, merki og mat fasteigna mega þeir einir gera merkjalýsingar sem fengið hafa til þess sérstakt leyfi ráðherra. Leyfið er gefið út til 5 ára og auglýsing um veitingu leyfis og leyfissviptingu eru birt í Lögbirtingablaðinu.

Listi yfir leyfishafa til að gera merkjalýsingarUmsókn um leyfi til að gera merkjalýsingar eða endurnýjun slíks leyfis
Sjá einnig: