06 október 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Atvinnuvegaráðuneytið
Aðgerðaáætlun gegn sýklalyfjaónæmi – eftirlit með innleiðingu
Alma D. Möller heilbrigðisráðherra, Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis- orku- og loftslagsmálaráðherra hafa staðfest áætlun um eftirlit með innleiðingu og framvindu verkefna aðgerðaáætlunar gegn sýklalyfjaónæmi. Áætlunin byggir á tillögum starfshóps sem heilbrigðisráðherra skipaði og mun gegna mikilvægu hlutverki í baráttunni gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis.
Fyrsta íslenska opinbera aðgerðaáætlunin gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis var birt í ágúst 2024 og í maí síðastliðnum samþykkti Alþingi þingsályktun á grundvelli hennar. Aðgerðaáætlunin var unnin af þverfaglegum starfshópi sem heilbrigðisráðherra skipaði og fól að móta slíka áætlun. Mikilvægt er að fylgja aðgerðaáætluninni eftir á markvissan hátt til að hrinda henni í framkvæmd og með það að markmiði vann hópurinn sérstaka áætlun um eftirlit og mat á framgangi þeirra verkefna sem aðgerðaáætlunin felur í sér. Tilgreint er hvernig háttað skuli eftirliti og mati á árangri og enn fremur hvernig tryggt verði að kostnaður verði í samræmi við áætlun.
„Sýklalyfjaónæmi er ein stærsta heilbrigðisógn sem heimurinn stendur frammi fyrir í dag og fer ógnin vaxandi með hverju ári. Með óbreyttri þróun mun sú staða koma upp að ekki verður hægt að meðhöndla ýmsar sýkingar með sýklalyfjum sem mun hafa miklar heilsufarslegar og efnahagslegar afleiðingar í för með sér. Það er því til mikils að vinna að ráðist verði sem fyrst í aðgerðir gegn sýklalyfjaónæmum bakteríum áður en útbreiðslan verður óviðráðanleg“ segir Alma Möller heilbrigðisráðherra.
Í aðgerðaáætluninni gegn útbreiðslu sýklalyfjaónæmis er tekið á öllum helstu áhættuþáttum sýklalyfjaónæmis í anda Einnar heilsu stefnunnar en með því er átt við að aðgerðir snúa að mönnum, dýrum, matvælum og umhverfi. Til að hámarka árangur aðgerðaáætlunarinnar þarf að innleiða skilvirkt eftirlit með innleiðingu og framvindu einstakra verkefna, meta afrakstur og árangur áætlunarinnar og gera breytingar á henni ef þess gerist þörf.