10 október 2025

/

Heilbrigðisráðuneytið

Mat á heilbrigðisviðbúnaði við bráðri lýðheilsuvá á Íslandi

{image.Description}
Þorkell / Landspítalinn

Fulltrúar Sóttvarnastofnunar Evrópu (ECDC), Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) og Evrópusambandsins (EU) luku nýlega mati á stöðu heilbrigðisviðbúnaðar Íslands við bráðum lýðheilsuógnum. Matið var unnið í samræmi við ákvæði reglugerðar ESB um alvarlegar heilbrigðisógnir þvert á landamæri. Aðildarríki EES samningsins undirgangast slíkt mat á þriggja ára fresti. Niðurstaðan liggur nú fyrir í meðfylgjandi skýrslu. Skýrslan sem er á ensku verður þýdd á íslensku og birtist þýðingin innan tíðar.

Sóttvarnalæknir skipulagði heimsóknina fyrir hönd heilbrigðisráðuneytisins í samstarfi við hlutaðeigandi ráðuneyti, stofnanir og hagaðila og tóku hátt í 100 einstaklingar hérlendis þátt í matinu með einum eða öðrum hætti.

Í meðfylgjandi skýrslu ECDC um stöðu heilbrigðisviðbúnaðar við bráðri lýðheilsuvá á Íslandi hafa verið teknar saman helstu niðurstöður ásamt ábendingum um þá þætti sem sérstaklega er mikilvægt að viðhalda eða bæta. Íslensk stjórnvöld munu í framhaldinu skila aðgerðaáætlun þar sem tekin er afstaða til og brugðist við þeim ábendingum sem fram koma í skýrslunni. Þótt ýmsar ábendingar komi fram um þætti sem þarf að styrkja er einnig sérstaklega dregið fram að viðbúnaður á Íslandi byggi á sterkri menningu um samstarf sem skili sér í hraðri og öruggri miðlun upplýsinga milli aðila. Þetta leiði til skjótrar ákvarðanatöku og viðbragða þegar vá ber að höndum.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra segir fyrirliggjandi mat ECDC og þá vinnu sem framundan er við mótun aðgerðaáætlunar mikilvægan lið í skipulagningu og eflingu heilbrigðisviðbúnaðar á Íslandi til framtíðar. Þetta muni einnig nýtast sem grundvöllur fyrir áframhaldandi þátttöku Íslands í European Health Union og samstarfi við HERA (Health Emergency Preparedness and Response Authority) en þar er lögð áhersla á að styrkja samhæfðan viðbúnað og viðbragð við heilbrigðisvá í Evrópu.