16 október 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Samráðsgátt: Hætt verði að miða við fæðingardag barns þegar breytingar eru gerðar á fæðingar- og foreldraorlofi
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur birt í samráðsgátt stjórnvalda frumvarp til laga um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. Lagt er til að breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra sem nýta rétt sinn innan fæðingarorlofskerfisins miði ekki lengur við fæðingardag barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur heldur skuli slíkar breytingar eiga við um alla foreldra í fæðingarorlofi og þá sem eiga rétt á slíkum greiðslum þegar breytingarnar taka gildi.
Í frumvarpinu er einnig lagt til að breytingar á fjárhæðum greiðslna á grundvelli laga um sorgarleyfi skuli eiga við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum, óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað.
Hverju breytir frumvarpið?
Frumvarpið sjálft inniheldur ekki breytingar á fjárhæðum heldur felur það í sér tillögu að því til hverra breytingar á fjárhæðum ná.
- Nýja fyrirkomulagið yrði þannig að þegar breytingar eru gerðar á þeim fjárhæðum sem fólk fær greiddar í fæðingar- og foreldraorlofi þá myndu þær ná til allra sem væru í slíku orlofi eða ættu rétt á því þegar breytingarnar tækju gildi.
- Fyrirkomulagið í dag er þannig að breytingar á fjárhæðum ná einungis til foreldra þeirra barna sem fæðast eftir að breytingarnar hafa tekið gildi.
Hvað gerist um áramótin?
Samkvæmt lögum sem samþykkt voru árið 2024 munu hámarksgreiðslur í fæðingar- og foreldraorlofi næst hækka um áramótin. Þá hækka hámarksgreiðslur úr 800.000 kr. í 900.000 kr. á mánuði.
Verði ofangreint frumvarp að lögum nú á haustþingi hefur það í för með sér að hækkunin á hámarksgreiðslunum mun ná til allra sem eiga rétt á fæðingar- og foreldraorlofi þann 1. janúar nk. Barn þarf þannig ekki að fæðast eftir áramót til að breytingin skili sér til foreldra þess heldur gæti barnið hafa fæðst árin 2024 eða 2025.
Samsvarandi breytingar gilda um þau sem eiga rétt á sorgarleyfi þann 1. janúar nk.