18 október 2025
/
Dómsmálaráðuneytið
Ísland í forystu í jafnréttismálum – dómsmálaráðherra á alþjóðlegri kvennaráðstefnu í Peking
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála tók þátt í alþjóðlegri ráðstefnu UN Women og kínverskra stjórnvalda í Peking, Beijing +30. Á ráðstefnunni komu saman fulltrúar ríkja heims til að ræða stöðu kvenna og framgang jafnréttismála þrjátíu árum eftir að Peking-yfirlýsingin var samþykkt árið 1995. Ráðherra fylgdi Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands í opinbera heimsókn til Kína og var forseti heiðursgestur á ráðstefnunni og flutti þar ávarp.
„Á ráðstefnunni fékk Ísland tækifæri til að miðla reynslu sinni í jafnréttismálum. Við vitum að jafnrétti kynjanna er lykillinn að velsæld ríkja og það gleður mig að aðrar þjóðir líti til okkar um fræðslu og leiðsögn í þessum efnum. Við höfum verið í efsta sæti Alþjóða efnahagsráðsins um kynjajafnrétti í 16 ár og gerum hvað við getum til að breiða út þann boðskap að lífskjör á Íslandi eru orðin góð því að við hámörkum árangur þegar kraftur alls samfélagsins er nýttur, ekki aðeins helmingur þess,“ segir dómsmálaráðherra.
Ráðstefnan var haldin á vegum UN Women og kínverskra stjórnvalda og voru nýjar áskoranir í jafnréttismálum ræddar, þar á meðal áhrif tæknibreytinga, loftslagsvár og átaka á stöðu kvenna. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir tók þátt í málstofu sem fjallaði um forystu kvenna og ábyrgð ríkja í því að sporna við bakslagi í jafnréttismálum.
Árangur Íslands í jafnréttismálum ekki sjálfsagður
Á ráðstefnunni áttu fulltrúar fjölmargra ríkjasamtal um hvernig tryggja megi að orðum fylgi aðgerðir. Þar kom einnig fram að kínversk stjórnvöld leggja nú aukna áherslu á að bæta stöðu kvenna, bæði með því að bæta réttindi þeirra og með því að virkja samfélagið í heild til aukinnar hagsældar.
„Það var augljóst í samtölum við erlenda leiðtoga og þátttakendur á ráðstefnunni að Norðurlöndin eru sterkar fyrirmyndir í jafnréttismálum. Við Íslendingar erum forystuþjóð í þessum efnum og eigum að vera stolt af því,“ segir ráðherra. „Árangur okkar í jafnréttismálum er ekki sjálfsagður. Þrotlaus vinna fyrri kynslóða og íslensku kvennahreyfingarinnar hefur skilað okkur á þann stað sem við erum á í dag. Þúsundir íslenskra kvenna hafa lagt sitt af mörkum í gegnum tíðina og þeirra samstaða, kynslóð eftir kynslóð, hefur skipt sköpum.“
Mannréttindi í brennidepli – tvíhliða fundur forsetanna
Í heimsókninni fylgdi Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, á tvíhliða fund forseta Íslands og Xi Jinping, forseta Kína, sem fór fram í Höll alþýðunnar í Peking. Á fundinum ítrekaði forseti Íslands afstöðu Íslands til mannréttinda og jafnréttis í alþjóðamálum og sagði Ísland aldrei skorast undan því að tala fyrir þeim gildum, innanlands sem utan.
Á fundinum vakti Xi Jinping sérstaka athygli á því að íslenska sendinefndin væri skýrt dæmi um árangur Íslands í jafnréttismálum – þar sem sex konur og einn karl sátu við borð Íslands, þegar kínverska sendinefndin var skipuð tíu körlum og einni konu. Xi sagðist telja þetta sýna að Ísland setji sér stefnu fylgi henni eftir.
„Ég var mjög stolt af því hvernig forseti Íslands talaði á fundinum. Það kom skýrt fram að Ísland stendur við sín gildi – bæði í orði og á borði,“ sagði dómsmálaráðherra að fundi loknum.
Mikilvæg samtöl við forystukonur í jafnréttismálum
Í hádegisverði í boði kínverskra stjórnvalda sat ráðherra til borðs með Hua Chunying, varautanríkisráðherra Kína, þar sem þær ræddu um reynslu Íslands í jafnréttismálum og þau verkfæri sem íslensk stjórnvöld hafa nýtt til að ná árangri.
Ráðherra og forseti ásamt forystukonum í jafnréttismálum
Ráðherra tók einnig þátt í kvöldverði í sendiráðsbústað Íslands í Peking með forystukonum í jafnréttismálum. Þar voru m.a. Sima Bahaus framkvæmdastýra UN Women, Michele Bachelet fyrsta framkvæmdastýra UN Women og fyrrum forseti Síle, Tao Kaiyuan varaforseti Hæstaréttar Kína og Huang Xiaowei ráðherra Allsherjarsamtaka kvenna í Kína.
Amakobe Senda framkvæmdastýra UNICEF í Kína, Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og Nadia Rasheed framkvæmdastýra UNFPA.
Ráðherra fundaði jafnframt með Amakobe Sande, framkvæmdastýru Barnahjálpar Sameinuðu Þjóðanna (UNICEF) í Kína, og Nadiu Rasheed, framkvæmdastýru Mannfjöldasjóðs Sameinuðu Þjóðanna (UNFPA). Á þeim fundum var fjallað um jafnrétti, mannréttindi og málefni barna. Framkvæmdastýrurnar sýndu Barnahúsi sérstakan áhuga en Barnahús þykir einstakt á heimsvísu.