22 október 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
VIRK og Vinnumálastofnun þétta raðirnar til að aðstoða fólk við að fá vinnu
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur sett af stað verkefni sem ganga út á að aðstoða langtímaatvinnulausa við að fá vinnu og styðja við nýtt örorku- og endurhæfingarkerfi. Markmiðið er að grípa fyrr hóp þeirra sem lengi hafa verið án atvinnu og aðstoða nýjan hóp hlutaörorkulífeyrisþega við að fá vinnu.
Verkefnin fela í sér þéttari samvinnu Vinnumálastofnunar og VIRK-Starfsendurhæfingarsjóðs:
-
Hingað til hefur VIRK þjónustað fólk í starfsendurhæfingu en aðstoðar nú líka atvinnuleitendur sem eru á skrá hjá Vinnumálastofnun og hafa lengi verið án atvinnu.
-
Ráðgjafar Vinnumálastofnunar og atvinnulífstenglar VIRK munu einnig í sameiningu nýta reynslu sína og þekkingu til að þjónusta nýjan hóp hlutaörorkulífeyrisþega í atvinnuleit.
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra:
„Ég vil virkja fólk og mannauðinn í samfélaginu okkar. Við verðum að gera allt sem við getum til koma í veg fyrir að fólk missi heilsu sökum óvirkni og detti út af vinnumarkaði. Þess vegna hef ég sett ný verkefni af stað og komið á þéttara samstarfi VIRK og Vinnumálastofnunar. Verkefnin tengjast nýja örorku- og endurhæfingarkerfinu en líka fyrirhugaðri styttingu á bótatímabili atvinnuleysistrygginga sem gengur út á að auka virkni fólks. Við erum að gera allt sem við getum til að ná til fólks og aðstoða það – og vera á sama tíma viss um að það sé á réttum stað í kerfinu.“Virkni og valdefling fólks sem lengi hefur verið án atvinnu
Fyrra verkefnið gengur út á að styðja langtímaatvinnuleitendur með markvissum úrræðum og efla þannig trú fólks á eigin getu, auka sjálfstraust þess og skapa jákvætt hugarfar gagnvart atvinnuleit. Þessu er ætlað að bæta stöðu viðkomandi á vinnumarkaði og auka líkur á ráðningu í starf. Verkefnið er framkvæmt af VIRK, byggir á forvörnum og gengur út á að styrkja og efla einstaklinga áður en þörf verður á starfsendurhæfingu.Byrjað verður á átta vikna námskeiðum á höfuðborgarsvæðinu fyrir langtímaatvinnuleitendur. Námskeiðin byggjast á fræðslu, hreyfingu, hópavinnu og heimaverkefnum.
- VIRK nálgast verkefnið í gegnum forvarnaþjónustu sína og nýtir til þess þekkingu og reynslu af þjónustu við einstaklinga með heilsubrest. Markmiðið er að grípa inn snemma svo ekki verði þörf á starfsendurhæfingu síðar meir. Telji VIRK að einstaklingur á námskeiðinu glími við heilsubrest verður staðan metin með tilliti til þess hvað sé vænlegast til árangurs fyrir viðkomandi. Í framhaldi af námskeiðinu fær fólk aðstoð við að komast í vinnu, ýmist frá ráðgjöfum Vinnumálastofnunar eða VIRK, allt eftir stöðu hvers og eins.
- Árangur verkefnisins verður metinn að loknum námskeiðunum í haust og niðurstöðurnar nýttar til að þróa námskeiðin áfram. Stefnt er að því að VIRK sinni forvarnaþjónustu sem þessari á fleiri stöðum á landinu.
Stuðningur við fólk sem er með hlutaörorku og í atvinnuleit
Seinna verkefnið tengist nýju örorku- og endurhæfingarkerfi sem tók gildi 1. september sl. Í nýja kerfinu eru auknir hvatar til atvinnuþátttöku, auk þess sem hlutaörorkulífeyrir og virknistyrkur eru nýmæli og ætluð þeim sem hafa getu til að vera í hlutastarfi á vinnumarkaði. Atvinnulífstenglar VIRK og ráðgjafar Vinnumálastofnunar munu sameina reynslu sína og krafta við að finna hlutastörf fyrir þann fjölbreytta hóp atvinnuleitenda sem er á hlutaörorku og fær virknistyrk samhliða atvinnuleit.
- Í upphafi mun VIRK einkum sinna þeim atvinnuleitendum sem Vinnumálastofnun metur að þurfi hugsanlega aðkomu heilbrigðismenntaðra sérfræðinga að halda við endurkomu á vinnumarkað. Með tímanum munu atvinnulífstenglar VIRK einnig þjónusta hóp hlutaörorkulífeyrisþega sem áður hafa verið í þjónustu VIRK eða eru að ljúka endurhæfingu og þurfa áframhaldandi stuðning til virkni og atvinnuþátttöku.
-
Árangur verkefnisins verður metinn eftir því sem fram vindur og áhrif kerfisbreytinganna koma fram. Samstarfinu verður stýrt í gegnum samráðshóp þar sem atvinnulífstenglar VIRK og ráðgjafar Vinnumálastofnunar vinna saman að markmiði breytinganna um aukna atvinnuþátttöku. Með samstarfinu skapast tækifæri til að tengja saman vinnu atvinnulífstengla VIRK og verkefni Vinnumálastofnunar sem fengið hefur heitið Unndís.
Unnur Sverrisdóttir, forstjóri Vinnumálastofnunar:
„Okkur hjá Vinnumálastofnun líst afar vel á þetta samstarf. Það er alkunna að þeim sem hafa verið í atvinnuleit í 12 mánuði eða lengur er hætt við að einangrast og festast í óvirkni, sem getur hindrað endurkomu á vinnumarkað. Við bindum vonir við að með því að fjölga úrræðum sem atvinnuleitendum stendur til boða megi draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir að fleiri hverfi alfarið af vinnumarkaði.“Vigdís Jónsdóttir, forstjóri VIRK:
„Við erum mjög spennt fyrir þessum verkefnum en þau eru hluti af forvarnarþjónustu VIRK sem er nú þegar í mikilli þróun. Bæði reynsla og rannsóknir sýna að það að vera lengi frá vinnu getur haft mjög slæm áhrif á heilsu og líðan einstaklinga. Með forvörnum af þessu tagi er markmiðið að virkja og efla getu einstaklinganna til að efla þátttöku þeirra á vinnumarkaði og koma í veg fyrir heilsubrest og vanvirkni til lengri tíma.“
Unnur Sverrisdóttir, Inga Sæland og Vigdís Jónsdóttir.