23 október 2025

/

Heilbrigðisráðuneytið

Styrkir til verkefna á sviði heilbrigðismála lausir til umsóknar

{image.Description}
Hari

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum frá íslenskum félagasamtökum um styrki til verkefna á sviði heilbrigðismála. Umsóknarfrestur hefur verið framlengdur til 30. nóvember næstkomandi.*

Úthlutun fer fram einu sinni á ári og eru veittir styrkir til verkefna sem miða að því að veita einstaklingum eða hópum stuðning, fræðslu og ráðgjöf. Verkefnin skulu falla að heilbrigðis- og lýðheilsustefnu.

Styrkir eru meðal annars veittir til verkefna sem felast í því að:

  • Útbúa fræðsluefni og standa fyrir fræðslustarfsemi
  • Vera málsvari og standa vörð um hagsmuni félagsmanna eða hópa þeim tengdum
  • Bjóða upp á stuðning og ráðgjöf

Einungis er tekið við rafrænum umsóknum. Nánari upplýsingar og leiðbeiningar um umsóknir á rafrænum eyðublöðum eru á eyðublaðavef Stjórnarráðsins: http://minarsidur.stjr.is

Umsókn sem berst eftir að umsóknarfresti lýkur verður ekki tekin til umfjöllunar. Ekki er tekið við umsóknum um rekstrarstyrki.

Umsóknarfrestur er til og með 30. nóvember 2025. Úthlutað verður eigi síðar en 20. febrúar 2026.

*Uppfært - umsóknarfrestur framlengdur til loka nóvember.