24 október 2025
/
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Ný samnorræn gervigreindarmiðstöð tekur formlega til starfa
Ný samnorræn og baltnesk gervigreindarmiðstöð, New Nordics AI, var opnuð í vikunni við hátíðlega athöfn í Helsinki, höfuðborg Finnlands. Miðstöðin verður með aðalskrifstofur sína í Stokkhólmi og mun hafa það meginmarkmið að efla samstarf á svæðinu, hraða upptöku gervigreindar og styrkja samkeppnishæfni svæðisins í alþjóðlegu samhengi. Stofnun miðstöðvarinnar rímar við aðgerðaáætlun íslenskra stjórnmála um gervigreind, sem kynnt var í sumar, og kveður á um virkt norrænt og alþjóðlegt samstarf á þessu sviði.
New Nordics AI er stofnuð í samstarfi fimm leiðandi aðila í gervigreind á svæðinu; Almannróms (Íslandi), AI Sweden (Svíþjóð), AI Finland (Finnlandi), Digital Dogme (Danmörku) og TEK Norge (Noregi). Þessar stofnanir munu þjóna sem starfsstöðvar miðstöðvarinnar í hverju landi fyrir sig og vinna náið með höfuðstöðvunum í Stokkhólmi. Ætlunin er að Eystrasaltsríkin taki þátt í miðstöðinni á komandi misserum. Með því að sameina krafta sína geta löndin auðveldað notkun og þróun gervigreindar og styrkt stöðu sína í málaflokknum í alþjóðlegu samhengi.
Verkefnið nýtur stuðnings stjórnvalda allra norrænu ríkjanna og hlaut í júní sl. stofnframlag frá Norrænu ráðherranefndinni upp á tæpar 570 milljónir íslenskra króna (30 milljónir danskra króna). Til viðbótar við Norrænu ráðherranefndina hafa Google, Microsoft og Nordic Innovation þegar samþykkt að veita verkefninu fjárhagslegan stuðning.
Nánari upplýsingar um miðstöðina má nálgast í hlekkjunum hér að neðan:
Ísland stofnmeðlimur samnorrænnar gervigreindarmiðstöðvar - Stjórnarráðið
Norðurlöndin þétta raðirnar í gervigreind – Almannarómur
Vefsíða New Nordics AI