11 nóvember 2025
/
Utanríkisráðuneytið
Jafnréttis- og barnamálaráðherra Síerra Leóne í heimsókn á Íslandi
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti fund með Dr. Isata Mahoi, jafnréttis-og barnamálaráðherra Síerra Leóne í húsakynnum utanríkisráðuneytisins við Austurhöfn í vikunni. Dr. Mahoi heimsótti Ísland í tilefni af Heimsþingi kvenleiðtoga í Reykjavík og þá sótti hún jafnframt málþing um konur, frið og öryggi sem fram fór í Háskóla Íslands.
Öflugt samstarf er á milli ríkjanna, ekki síst á sviði jafnréttismála, en Ísland hefur markvisst stutt við þróunarsamvinnu í Síerra Leóne frá árinu 2018 og opnaði sendiráð í höfuðborginni Freetown á síðasta ári.
„Það var afar ánægjulegt og kærkomið að fá Dr. Mahoi í heimsókn til landsins. Ég er mjög þakklát fyrir hið góða samstarf Íslands og Síerra Leóne sem og sameiginlegar skuldbindingar okkar um að standa vörð um jafnrétti kynjanna,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. „Varanlegar lausnir við áskorunum nútímans felast nefnilega í því að tryggja jöfn tækifæri og styrkja konur og stúlkur til að taka fullan þátt í samfélaginu.“
Íslensk stjórnvöld hafa lagt áherslu á uppbyggingu grunnþjónustu og félagslegra innviða í Síerra Leóne, þar sem velferð kvenna og barna í fátækum og afskekktum sjávarbyggðum landsins er í fyrirrúmi. Þá hefur verið lögð mikil áhersla á kynjajafnrétti og mannréttindi í samræmi við stefnu Íslands í alþjóðlegri þróunarsamvinnu, en íslensk stjórnvöld vinna náið með ráðuneyti Dr. Mahoi að ýmsum jafnréttistengdum verkefnum, þ.m.t. innleiðingu nýrrar jafnréttislöggjafar í héruðum landsins, sem samþykkt var árið 2022 og veitir konum aukin pólitísk, félagsleg og efnahagsleg réttindi. Þá lýtur samstarfið einnig að bættu kyn- og frjósemisheilbrigði, m.a. til að útrýma fæðingarfistli í landinu, og koma í veg fyrir kynbundið ofbeldi og limlestingar á kynfærum kvenna og stúlkna (e. FGM).
Önnur verkefni íslenskra stjórnvalda í Síerra Leóne snúa að menntun, heilbrigðisþjónustu, vatni og hreinlæti, bláa hagkerfinu og lýðræðisþróun, en þau eru unnin í nánu samstarfi við yfirvöld, alþjóðlegar stofnanir og frjáls félagasamtök í landinu.
Ötul talskona og öflugur bandamaður Íslands
Sem ráðherra jafnréttismála hefur Dr. Mahoi haldið fjölda fyrirlestra innanlands sem utan og er öflug talskona þess að efla tengsl milli ríkja í suðrinu (south-to-south). Þrátt fyrir miklar áskoranir í jafnréttismálum í Síerra Leóne, hefur hún unnið ötullega að því að bæta stöðu og velferð kvenna og stúlkna í landinu og er öflugur bandamaður Íslands.
Hún þakkaði utanríkisráðherra og Íslandi fyrir samstarfið við að stuðla að auknu kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna og stúlkna í Síerra Leóne. Hún lagði áherslu á að slíkt samtarf væri ómetanlegt fyrir þjóð sína, ekki síst í ljósi þess bakslags sem nú er að eiga sér stað í baráttunni fyrir kynjajafnrétti og mannréttindum á sama tíma og mörg ríki draga úr opinberri þróunaraðstoð, þar á meðal til jafnréttismála.
Síerra Leóne hefur látið til sín taka í alþjóðasamvinnu að undanförnu, en ríkið hefur átt sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna (2024-2025) og situr í forsæti þess nú í nóvember. Auk þess var forseti landsins kosinn til formennsku í efnahagsbandalagi Vestur-Afríku ríkja, ECOWAS, síðastliðið sumar.
Dr. Isata Mahoi á tvíhliða fundi með forseta Íslands, mennta- og barnamálaráðherra og umboðsmanni barna á meðan á dvöl hennar stendur, sem og fundi með utanríkismálanefnd Alþingis og þróunarsamvinnunefnd. Ráðherrann mun einnig heimsækja Barna-og fjölskyldustofu, þar sem hún mun kynna sér starfsemi Barnahúss á Íslandi, en nýlega voru samþykkt lög um aukin réttindi barna í Síerra Leóne sem ná m.a. yfir bætta vernd barna í réttarkerfinu.