18 nóvember 2025
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Mælti fyrir frumvarpi um eina öfluga stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra, mælti í dag fyrir frumvarpi sem felur í sér að starfsemi Skipulagsstofnunar og Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar (HMS) sameinist. Með sameiningunni verður allur ferillinn, frá skipulagi til fullbúins mannvirkis, á höndum einnar stofnunar.
Um 150 manns starfa hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun á þremur stöðum á landinu og um 25 manns hjá Skipulagsstofnun. Lagt er til að starfsemin verði sameinuð þannig að verkefni Skipulagsstofnunar renni inn í Húsnæðis- og mannvirkjastofnun og að heiti stofnunarinnar verði breytt í Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun. Stofnanirnar eru nú þegar farnar að vinna að samrunanum.
Sameiningunni er ætlað að auka bolmagn hins opinbera í skipulagsmálum og ná bæði fram samlegðaráhrifum og meiri samþættingu málaflokka á sama sviði. Sameiningunni er einnig ætlað að mæta auknu ákalli um yfirsýn yfir þróun byggðar, sjálfbæra landnotkun, húsnæðisþörf og nýtingu auðlinda.
„Við í ríkisstjórninni höfum lagt ríka áherslu á hagsýni í ríkisrekstri. Að sameina fámennar stofnanir við aðrar stærri er liður í því. En við viljum ekki bara sameina til að sameina heldur til að ná fram því besta í hverjum málaflokki. Sameiningin mun einfaldlega skila okkur enn öflugri stofnun á sviði húsnæðis og skipulagsmála,“ segir Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.
„Almenn sátt er um tillöguna og mig langar sérstaklega nefna að starfsmenn stofnananna hafa undirbúið sameininguna af áhuga og eftirvæntingu og sýnt gott fordæmi fyrir aðra starfsmenn hins opinbera.“