19 nóvember 2025
/
Heilbrigðisráðuneytið
Stöðuskýrsla um umbreytingar í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn
Heilbrigðisráðuneytið birtir nú stöðuskýrslu um fyrsta fasa umbreytinga í geðheilbrigðisþjónustu fyrir börn og ungmenni. Markmið verkefnisins er í samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar um að geðheilbrigðisþjónusta sé aðgengileg um allt land, með skýrum, einföldum þjónustuleiðum, samfelldri þjónustu og samþættingu milli kerfa, sérstaklega þegar kemur að börnum og öðrum viðkvæmum hópum. Fjölmennur þverfaglegur vinnuhópur skipaður fulltrúum frá átta stofnunum vinnur að verkefninu. Frá upphafi verkefnisins hefur verið lögð rík áhersla á notendasamráð til að öðlast dýpri skilning á þjónustunni frá sjónarhóli notenda og úrbætur
Skýrslan dregur fram að núverandi geðheilbrigðiskerfi sé bæði flókið og ósamræmt, með óskýr mörk milli þjónustustiga og mismunandi verkferla eftir landshlutum. Þetta skapar ójafnræði, langa biðlista og gerir börnum og fjölskyldum þeirra erfitt fyrir að finna leið í gegnum þjónustuna. Því er lagt til að kerfið verði einfaldara og skýrar skilgreint með tveimur meginstigum í stað þriggja stiga eins og nú er.
Skýrslan undirstrikar jafnframt þörf á að efla þjónustu á landsbyggðinni, þróa skýran vegvísi um þjónustuleiðir, byggja upp sameiginlega þekkingar- og þjálfunarmiðstöð fyrir fagfólk og tryggja samræmt verklag milli heilbrigðis-, mennta- og félagskerfa. Slík samþætting er forsenda þess að börn fái tímanlega, örugga og markvissa þjónustu sem tekur mið af þörfum þeirra. Vinna við endurskoðun og framkvæmd og innleiðingu umbreytinga í geðheilbrigðisþjónustu og skipulags fer fram í áföngum. Gert er ráð fyrir að öðrum áfanga ljúki um áramót og hefst innleiðingarfasi verkefnisins í janúar 2026.
Tengt efni: