21 nóvember 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Frumvarp um skýrslugjöf í stað jafnlaunavottunar afgreitt úr ríkisstjórn

{image.Description}
Hari

Frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna var afgreitt úr ríkisstjórn í dag. Í frumvarpinu er lagt til að jafnlaunavottun verði lögð niður í núverandi mynd án þess þó að hvikað verði frá markmiðum um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns.

Í stað vottunarinnar er lagt til að gerð verði krafa um reglubundna skýrslugjöf um kynbundinn launamun. Með skýrslugjöfinni verður atvinnurekendum gert að skila reglubundnum gögnum um kynbundinn launamun og sýna fram á að launakerfi þeirra uppfylli kröfur jafnréttislaga. Breytingarnar miða að því að gera fyrirtækjum og stofnunum betur kleift að uppfylla markmið jafnréttislaga með skilvirkari, hagkvæmari og gagnsærri hætti en áður.

„Mikilvægur þáttur í því að koma á og viðhalda raunverulegu launajafnrétti milli kynjanna er að atvinnurekendur sýni reglulega og með áreiðanlegum hætti fram á að launakerfi þeirra mismuni ekki á grundvelli kyns. Reynslan hefur sýnt að núverandi kerfi hefur verið óþarflega flókið og íþyngjandi fyrir atvinnurekendur, og því vil ég bæta úr. Með þessu verður ferlið einfaldað og dregið er úr kostnaði við framkvæmd þess fyrir fyrirtæki og stofnanir,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.

Við gerð frumvarpsins var tekið mið af athugasemdum sem komið hafa fram um framkvæmd jafnlaunavottunar. Þá var tekið tillit til tillagna starfshóps forsætisráðherra um hagræðingu í ríkisrekstri þar sem lagt var til að létt yrði á jafnlaunavottun og stærðarmörk rýmkuð.

Skýrslugjöf í stað vottunar

Lagt er til að atvinnurekendur skili gögnum til Jafnréttisstofu sem sýni fram á að greidd séu sömu laun fyrir sömu eða jafnverðmæt störf og að launaákvarðanir séu teknar út frá kynhlutlausum viðmiðum. Þeim verður gert skylt að skila gögnum um starfaflokkun og launagreiningu ásamt tímasettri úrbótaáætlun, ef kynbundinn launamunur mælist, þar sem fram kemur hvernig brugðist skuli við og hvernig hann verði leiðréttur. Eftirlitshlutverk Jafnréttisstofu verður áfram til staðar.

Áfram er gert ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir skili inn gögnum á þriggja ára fresti. Þar sem jafnlaunaferlið mun ekki lengur byggja á jafnlaunastaðlinum verður ekki gerð krafa um árlegar úttektir á jafnlaunakerfinu þar sem sú krafa er bundin við notkun staðalsins.   

Þá verða þróaðar stafrænar lausnir fyrir Jafnréttisstofu vegna gagnaskila fyrirtækja og stofnana með það að markmiði að einfalda yfirferð gagna, úrvinnslu þeirra og eftirlit með framkvæmd laganna.

Rýmkun stærðarmarka

Lagt er til að stærðarmörk þeirra fyrirtækja og stofnana sem skyldan nær til verði rýmkuð. Skyldan verði bundin við fyrirtæki og stofnanir þar sem starfa 50 eða fleiri. Skyldan í gildandi lögum nær til fyrirtækja og stofnanna þar sem starfa 25 eða fleiri.

Sama regla gildir fyrir öll fyrirtæki og stofnanir, jafnt á almenna og opinbera vinnumarkaðnum með þeirri undantekningu að öll ráðuneyti innan Stjórnarráðsins skuli skila gögnum óháð fjölda starfsfólks.

Gert er ráð fyrir að ráðherra láti meta framgang og árangur af skýrslugjöf um kynbundinn launamun á þriggja ára fresti og áfram verða framkvæmdar reglubundnar viðhorfskannanir um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun.