21 nóvember 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Opnað fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna Vigdísar

{image.Description}
Embætti Forseta Íslands
Verðlaunin eru kennd við frú Vigdísi Finnbogadóttur

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til jafnréttisverðlauna í nafni Vigdísar Finnbogadóttur. Til verðlaunanna var stofnað í Reykjavík í maí 2023 í aðdraganda leiðtogafundar Evrópuráðsins.

Verðlaununum er ætlað að verðlauna einstakling eða samtök sem stuðla að eða styðja með framúrskarandi hætti við valdeflingu kvenna; hvort sem um er að ræða aðgerðir sem stuðla að jafnrétti kynjanna, jafnari samfélagslegri þátttöku kvenna eða aðgerðir sem vekja athygli á ójafnri stöðu kvenna og hvetja til úrbóta. Að verðlaununum standa ríkisstjórn Íslands og Evrópuráðsþingið.

Verðlaunin eru kennd við frú Vigdísi Finnbogadóttur, fyrstu konuna sem var kjörin þjóðarleiðtogi í heiminum. Verðlaunaféð er 60 þúsund evrur og verða verðlaunin afhent í þriðja sinn í júní á næsta ári í Strassborg í Frakklandi.

Fyrr á árinu hlutu palestínsku samtökin Women of the Sun verðlaunin. Samtökin vinna að valdeflingu palestínskra kvenna með því að styrkja rödd þeirra og áhrif bæði í stjórnmálum og viðskiptalífi bæði innan Palestínu og á alþjóðlegum vettvangi. 

Palestínsku samtökin Women of the Sun tóku við Jafnréttisverðlaunum Vigdísar Finnbogadóttur í Strassborg í júní sl.

Dómsmálaráðuneytið hvetur öll til þess að tilnefna framúrskarandi einstaklinga eða samtök sem viðkomandi telja að eigi skilið að fá verðlaun fyrir framúrskarandi störf í þágu kynjajafnréttis.

Frestur til að skila inn tilnefningum er til 27. mars 2026 á netfangið [email protected] og notast skal við sérstakt eyðublað sem finna má á vef verðlaunanna.

Nánari upplýsingar um verðlaunin má nálgast á vef Evrópuráðsþingsins