28 nóvember 2025

/

Dómsmálaráðuneytið

Samráðsvettvangur um jafnrétti kynjanna fundar um forvarnir gegn ofbeldi

{image.Description}

Fundur í samráðsvettvangi um jafnrétti kynjanna verður haldinn miðvikudaginn 3. desember klukkan 9:00–12:00 í Hannesarholti. Þema fundarins að þessu sinni verður forvarnir gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi meðal barna og ungmenna. Sérstök áhersla verður lögð á stafrænt kynferðisofbeldi og forvarnir og viðbrögð gegn því.

Samráðsvettvangur um jafnréttismál - Jafnréttisráð starfar skv. 24. grein laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna. Rétt til þátttöku á fundum samráðsvettvangs eiga fulltrúar frá samtökum sem vinna að jafnrétti kynjanna, fulltrúar frá aðilum vinnumarkaðarins og fræðasamfélags. Þá eiga fulltrúar sveitarfélaga og samtaka þeirra einnig rétt til þátttöku. Gert er ráð fyrir einum fulltrúa frá hverjum aðila.

Hlutverk samráðsvettvangsins er að vera ráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumótun í málum sem tengjast jafnrétti kynjanna. Lögaðilar sem starfa að jafnrétti kynjanna samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna önnur en þau sem tilgreind eru hér að ofan geta óskað eftir þátttöku en gerð er sú krafa að um sé að ræða lögaðila með stjórn og skráða kennitölu.

Umsóknir um þátttöku sendist á skrifstofu jafnréttismála í dómsmálaráðuneytinu á netfangið [email protected] fyrir 1. desember nk. merkt Samráðsvettvangur.