19 desember 2025

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Hætt verður að miða við fæðingardag barns þegar breytingar eru gerðar á fæðingar- og foreldraorlofi

{image.Description}
Inga Sæland, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Alþingi hefur samþykkt frumvarp Ingu Sæland, félag og húsnæðismálaráðherra um breytingu á lögum um fæðingar- og foreldraorlof og lögum um sorgarleyfi. 

Eftir gildistöku nýju laganna munu breytingar á fjárhæðum greiðslna til foreldra sem nýta rétt sinn innan fæðingarorlofskerfisins ekki lengur miða við fæðingardag barns, frumættleiðingu eða töku barns í varanlegt fóstur heldur skuli slíkar breytingar eiga við um alla foreldra í fæðingarorlofi og þá sem eiga rétt á slíkum greiðslum þegar breytingarnar taka gildi.

Jafnframt munu breytingar á fjárhæðum greiðslna á grundvelli laga um sorgarleyfi eiga við um alla foreldra sem nýta rétt sinn samkvæmt lögunum, óháð því hvenær barnsmissir, andvanafæðing, fósturlát eða makamissir á sér stað.

Inga Sæland sagði í framsöguræðu; „Ég er stolt af því að mæla fyrir þessum breytingum hér í dag sem ég tel vera mikið framfaraskref fyrir foreldra og fjölskyldur og styðja enn betur við fólk þegar það stendur á tímamótum – gleðistundum nýrrar fjölskyldu eða erfiðustu augnablikum sorgar. Með fyrirhuguðum breytingum er leitast við að tryggja betur afkomuöryggi foreldra í fæðingarorlofi og sorgaleyfi og eyða óvissu þeirra um hverjar fyrirhugaðar tekjur verði á því tímabili í lífi þeirra. Með þessum breytingum mun jafnræði milli foreldra í fæðingarorlofi janframt verða betur tryggt og samræmi aukast í greiðslum til þeirra.“

Hverju breytir frumvarpið?

Nýju lögin innihalda ekki breytingar á fjárhæðum heldur kveða þau á um til hverra breytingar á fjárhæðum ná.

  • Nýja fyrirkomulagið mælir fyrir um að þegar breytingar eru gerðar á þeim fjárhæðum sem fólk fær greiddar í fæðingar- og foreldraorlofi þá skulu þær ná til allra sem eru í slíku orlofi eða ættu rétt á því þegar breytingarnar tækju gildi.
  • Fyrirkomulagið hefur hingað til verið á þá leið að breytingar á fjárhæðum ná einungis til foreldra þeirra barna sem fæðast eftir að breytingarnar hafa tekið gildi.

Hvað gerist um áramótin?

Samkvæmt lögum sem samþykkt voru árið 2024 munu hámarksgreiðslur í fæðingar- og foreldraorlofi næst hækka um næstu áramót og er hækkunin úr 800.000 kr. í 900.000 kr. á mánuði.

Með samþykkt frumvarpsins nú mun hækkunin á hámarksgreiðslunum ná til allra sem eiga rétt á fæðingar- og foreldraorlofi þann 1. janúar nk. Barn þarf þannig ekki að fæðast eftir áramót til að breytingin skili sér til foreldra þess heldur gæti barnið hafa fæðst árin 2024 eða 2025.

Samsvarandi breytingar gilda um þau sem eiga rétt á sorgarleyfi þann 1. janúar nk.