19 desember 2025

/

Innviðaráðuneytið

Jöfnunarsjóður: Endanleg útgjalda- og tekjujöfnunarframlög og fasteignaskattsframlög fyrir árið 2025

{image.Description}

Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra hefur samþykkt tillögur ráðgjafanefndar Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga um endurskoðaða úthlutun á útgjaldajöfnunarframlagi, tekjujöfnunarframlagi og framlagi til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2025. Um er að ræða síðustu úthlutun framlaganna en frá og með áramótum mun nýtt úthlutunarlíkan Jöfnunarsjóðs leysa framlögin af hólmi.

Útgjaldajöfnunarframlög árið 2025

Ráðherra samþykkti tillögu ráðgjafanefndar um endurskoðaða úthlutun á útgjaldajöfnunarframlögum fyrir árið 2024, samkvæmt 14. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018. Samþykkt var að hækka útgjaldajöfnunarframlög sjóðsins vegna ársins 2025 um 400 m.kr. Við endurskoðunina var tekið mið af leiðréttum hámarkstekjum á íbúa í hverju sveitarfélagi. Framlögin nema samtals 17.400 m.kr. Þar af eru framlög vegna skólaaksturs úr dreifbýli 750 m.kr. og framlög vegna akstursþjónustu fatlaðs fólks úr dreifbýli 35 m.kr. Framlög ársins 2024 námu 16.050 m.kr. og hækka framlögin á árinu 2025 því um 1.350 m.kr. sem er rúmlega 8% hækkun.

Tekjujöfnunarframlög árið 2025

Þá var samþykkt tillaga ráðgjafanefndar um endurskoðaða úthlutun á tekjujöfnunarframlögum fyrir árið 2025, samkvæmt 13. gr. reglugerðar um Jöfnunarsjóð sveitarfélaga nr. 1088/2018. Við endurskoðun var tekið mið af endanlegum útsvarsstofni sveitarfélaga vegna tekna á árinu 2024. Heildarúthlutun tekjujöfnunarframlaga í ár nemur 1,4 ma.kr.  ¾ hlutar framlaganna, 1,05 ma.kr. komu til greiðslu í nóvember. Eftirstöðvar framlaga, 350 m.kr. hafa þegar komið til greiðslu.

Framlög til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts árið 2025

Ráðherra samþykkti jafnframt tillögu ráðgjafanefndar um endurskoðaða úthlutun á framlagi til jöfnunar á tekjutapi vegna fasteignaskatts fyrir árið 2025, samkvæmt reglugerð nr. 80/2001. Endurskoðunin tekur mið af auknu ráðstöfunarfjármagni sjóðsins til greiðslu framlagsins. Heildarúthlutun framlagsins í ár nemur 7,82 ma.kr. Nú þegar hafa um 7,64 ma.kr. komið til greiðslu. Eftirstöðvar framlagsins um 178 m.kr. koma til greiðslu í lok árs.