11 febrúar 2026
/
Dómsmálaráðuneytið
Áhersla á aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi í nýsamþykktri framkvæmdaáætlun
Þingsályktunartillaga dómsmálaráherra um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026 til 2029 var samþykkt á Alþingi þann 2. febrúar síðastliðinn. Tillagan inniheldur 41 aðgerð sem er ætlað að tryggja jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna í íslensku samfélagi og endurspegla forgangsröðun stjórnvalda í málaflokknum.
Samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal ráðherra leggja fyrir Alþingi á fjögurra ára fresti tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum til fjögurra ára í senn. Áætlunin er lögð fram að fengnum tillögum einstaka ráðuneyta, auka þess að hliðsjón var höfð af umræðum á á jafnréttisþingi og niðurstöðum umræðuhópa frá fundum samráðsvettvangs um jafnréttismál. Þá var tillagan unnin í samráði við Jafnréttisstofu og kynnt í samráðsgátt stjórnvalda.
„Ísland hefur skipað sér í fremstu röð í jafnréttismálum vegna skýrrar pólitískrar forystu og samstöðu baráttukvenna fyrri áratuga. Kynbundið ofbeldi, heimilisofbeldi og kerfisbundið vanmat kvennastarfa eru þó enn mein sem þarf að uppræta. Með þessari lögbundnu framkvæmdaáætlun erum við að stíga mikilvæg skref,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála.
Aðgerðir í áætluninni skiptast í sex efnisflokka sem eru kyn, áhrif og þátttaka, kynjuð tölfræði og mælaborð, jafnrétti á vinnumarkaði og kynbundinn launamunur, kynbundið og kynferðislegt ofbeldi, jafnrétti í menntun og íþrótta- og æskulýðsstarfi og alþjóðastarf. Allar aðgerðirnar eru tengdar við heimsmarkmið Sameinuðu þjóðanna.
Jafnrétti á vinnumarkaði og aðgerðir gegn ofbeldi
Áhersla er lögð á markvissar aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi og heimilisofbeldi, þar sem stefnt er að öflugri forvörnum, bættri þjónustu við þolendur og skýrari ábyrgð innan kerfisins. Markmiðið er að tryggja að vernd og réttur þolenda sé í forgangi og að samfélagið allt standi saman gegn ofbeldi.
Áætlunin kveður jafnframt á um áframhaldandi sókn í launajafnréttismálum með aðgerðum sem miða að því að draga úr kynbundnum launamun og rjúfa kynskiptan vinnumarkað. Með aukinni gagnsæi, markvissri eftirfylgni og aðgerðum sem taka á kerfisbundnu vanmati starfa er ætlunin að tryggja að jafnrétti á vinnumarkaði verði raunverulegt í framkvæmd en ekki aðeins yfirlýst markmið.