13 febrúar 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Ragnar Þór Ingólfsson fundar á Kýpur með evrópskum félags- og vinnumarkaðsráðherrum
Í morgun ræddu ráðherrarnir um sanngjarna vinnu og jöfn tækifæri. Rætt var um hvaða stefnur og aðgerðir hefðu reynst árangursríkar til að efla heilbrigðan vinnumarkað og stuðla að félagslegu réttlæti.
Síðdegis verður rætt um fyrstu heildstæðu stefnu ESB gegn fátækt sem nú er í undirbúningi og búist er við að verði samþykkt síðar á árinu. Deginum lýkur síðan með umræðu um þjónustu við eldra fólk í Evrópu og hvernig öflug heimaþjónusta og heilsutengdar forvarnir gegna þar lykilhlutverki.
Opnar umræður og pólitísk stefnumörkun
Óformlegir ráðherrafundir ESB á sviði félags - og vinnumarkaðsmála (EPSCO) eru fundir þar sem ráðherrar aðildarríkjanna ræða stór stefnumarkandi mál utan hins formlega lagasetningarferlis.
Fundirnir fara reglulega fram og miða að því að skapa rými fyrir opnar umræður og pólitíska stefnumörkun um helstu áskoranir á sviði vinnumarkaðar, félagsmála, jafnréttis og félagslegrar samheldni í Evrópu.
Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra og Hendrik Frandsen, ráðherra öldrunarmála í Danmörku.
Af ráðherrafundinum nú í morgun.