17 febrúar 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Dómnefnd skilar umsögn um umsækjendur um embætti héraðsdómara

{image.Description}
Hari

Þann 5. desember 2025 auglýsti dómsmálaráðuneytið í Lögbirtingablaði laus til umsóknar tvö embætti héraðsdómara. Annars vegar er um að ræða skipun í embætti dómara sem mun hafa starfsstöð við Héraðsdóm Reykjavíkur en sinna störfum við alla héraðsdómstólana eftir ákvörðun dómstólasýslunnar. Hins vegar setningu í embætti dómara með fyrsta starfsvettvang við Héraðsdóm Reykjavíkur meðan á leyfi skipaðs dómara stendur.

Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögnunum sínum til ráðherra. Það er niðurstaða dómnefndar að Sindri M. Stephensen sé hæfastur umsækjenda til að hljóta skipun í embætti héraðsdómara. Þá er það niðurstaða dómnefndar að Brynjar Níelsson sé hæfastur umsækjenda til að hljóta setningu í embætti héraðsdómara. Eftir að umsögn dómnefndar barst ráðherra dró Brynjar Níelsson umsókn sína til baka.   

Dómnefndina skipuðu: Ása Ólafsdóttir, formaður, Andri Árnason, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögn um skipun í embætti dómara

Umsögn um setningu í embætti dómara