20 febrúar 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Ásmundur Einar leiðir nefnd dómsmálaráðherra um strákana okkar

{image.Description}
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir og Ásmundur Einar Daðason

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur skipað nefnd um stráka sem hefur það hlutverk að vinna skýrslu með yfirsýn yfir samfélagslega stöðu drengja og karla og þær áskoranir sem þeir standa frammi fyrir.

Ásmundur Einar Daðason, fyrrum mennta- og barnamálaráðherra, er formaður nefndarinnar en ásamt honum skipa nefndina Bjarni Fritzson, Kári Sigurðsson, Thelma Rut Haukdal Magnúsdóttir og Þórdís Valsdóttir.

„Það er frábært að fá Ásmund Einar til að leiða þennan hóp. Hann hefur víðtæka reynslu og mikla ástríðu fyrir verkefninu. Strákar eru ekki vandamálið heldur ómissandi hluti af lausninni. Undanfarin ár hefur umræðan því miður verið neikvæð um stöðu drengja. Verkefnið okkar er að tryggja að strákar upplifi sig ekki byrði á samfélaginu og að þeir finni fyrir öryggi og stuðningi í íslensku samfélagi,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála.

Kalla að borðinu ólíka aðila

Verkefni nefndarinnar er að styðja við aðgerð tíu í nýsamþykktri framkvæmdaáætlun í kynjajafnréttismálum fyrir árin 2026-2029 og er nefndinni falið að leggja fram tillögur að aðgerðum til að auka þátt karla í umræðum um jafnrétti kynjanna og hvernig megi virkja þá frekar til þátttöku í jafnréttisstarfi.

Á meðan vinnu nefndarinnar stendur mun hún kalla að borðinu ólíka hagaðila sem starfa á þessu sviði hérlendis, leiða saman fulltrúa ólíkra sjónarmiða og tryggja aðkomu þeirra að tillögugerðinni þannig að sem breiðust sátt náist um tillögurnar.

Nefndin skal skila tillögum til ráðherra eigi síðar en árslok 2026.