09 mars 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Utanríkisráðuneytið

Sjötugasti fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna hafinn

{image.Description}
Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra ásamt Önnu Jóhannsdóttur fastafulltrúa Íslands gagnvart Sameinuðu þjóðunum í New York

Sjötugasti fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna (CSW70) hófst í New York í morgun. Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála, sækir fundinn fyrir hönd Íslands. Einnig taka fulltrúar stjórnvalda, grasrótarsamtaka, opinberra stofnana og Alþingis þátt í fundinum.

„Það er mikilvægt að Ísland taki virkan þátt á þessum vettvangi. Ísland er í fremstu röð í heiminum í jafnréttismálum og við berum ábyrgð á að miðla þeirri reynslu og standa með þeim sem berjast fyrir réttindum kvenna og stúlkna um allan heim,“ segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra og ráðherra jafnréttismála.

Setningarathöfn Kvennanefndarfundarins hófst í sal allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna með hátíðardagskrá í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna 8. mars. Mesta athygli vakti brýning pakistönsku baráttukonunnar Malala Yousafzai og Anne Hathaway sérlegs erindreka UN Women. Þær hvöttu þjóðir heims til að spyrna fast við fótum gegn bakslagi  sem víða gætir í jafnréttismálum og til að standa vörð um mannréttindi.

Malala Yousafzai á Kvennanefndarfundinum fyrr í dag

Baráttukonan Malala Yousafzai sagði að réttlæti fyrir stúlkur og konur ætti ekki aðeins að gilda í einhverjum löndum heldur öllum. Konum í Afganistan hefði ekki verið leyft að sækja skóla, vinnu eða tjá sig á opinberum vettvangi í fimm ára valdatíð talíbana. Malala sagði að hún hefði haldið að hún gæti haft áhrif til að bæta stöðu kvenna í Afganistan þegar hún talaði í fyrsta sinn á allsherjarþinginu. Hún hefði orðið fyrir hjartasári þegar hún áttaði sig á því að þannig væri því ekki farið. „Þið getið breytt þessu,“ sagði hún og biðlaði til áheyranda í salnum um að nýta valdastöðu sína og áhrif til að koma konum í Afganistan til hjálpar. Eftir hefðbundnar setningarræður hófust framsöguræður aðildarríkja Sameinuðu þjóðanna.

Áhersla á aðgang kvenna og stúlkna að réttarkerfinu

Þema Kvennanefndarfundarins í ár er aðgerðir til að tryggja og styrkja jafnan aðgang kvenna og stúlkna að réttarkerfinu, meðal annars með umbótum á málsmeðferð, lagabreytingum til að uppræta mismunun og aðgerðum til að bregðast við kerfislægum hindrunum.

Íslensk stjórnvöld leggja sérstaka áherslu á baráttuna gegn kynbundnu ofbeldi á fundinum. Í því samhengi standa íslensk stjórnvöld fyrir hliðarviðburði á morgun í samstarfi við þýsk og kenísk stjórnvöld og UN Women undir yfirskriftinni Réttlæti án hindrana. Þar verður fjallað um sameiginlegar áskoranir í baráttunni gegn kynbundnu ofbeldi, lærdóm af ólíkum aðferðum, forvarnir og stuðning við þolendur.

Á meðan á dvöl ráðherra í New York stendur tekur hún einnig þátt í viðburðum á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar, á fundi með leiðtogum annarra ríkja og fulltrúum alþjóðlegra samtaka, auk þess að kynna sér starfsemi lögregluyfirvalda í New York.