20 apríl 2026

/

Stöðuskýrsla Velferðarvaktarinnar 2023-2025

{image.Description}

Velferðarvaktin hefur gefið út stöðuskýrslu sem nær yfir störf vaktarinnar árin 2023-2025. Á síðustu árum hefur vaktin reglulega skilað stöðuskýrslum til félags- og húsnæðismálaráðherra skv. skipunarbréfi.

Í skýrslunni er fjallað um helstu viðfangsefni vaktarinnar á tímabilinu þ.m.t. þær rannsóknir sem vaktin hefur bæði staðið fyrir og komið að. Velferðarvaktin stóð einnig fyrir málþingi um stöðu tekjuminni hópa á húsnæðismarkaði sem fjallað er nánar um í skýrslunni. Þá er sagt frá sérstökum umræðum um tiltekin málefni og erindum sem send hafa verið ráðherrum og jafnframt sagt frá vinnustofu sem fulltrúar vaktarinnar tóku þátt í á síðasta ári.

Stöðuskýrsla Velferðarvaktarinnar 2023-2025.