27 apríl 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Heimilt að beita rafrænu eftirliti í nálgunarbannsmálum

{image.Description}

Alþingi samþykkti í dag frumvarp dómsmálaráðherra um breytingar á lögum um nálgunarbann og brottvísun af heimili. Með breytingunum verður lögreglu heimilt að taka ákvörðun um að beita rafrænu eftirliti með staðsetningarbúnaði, t.a.m. með ökklabandi, samhliða ákvörðun um nálgunarbann og brottvísun af heimili.

Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra

„Ég fagna því að þetta frumvarp sé orðið að lögum. Þetta er skýrt skref til að auka vernd brotaþola. Með þessu fær lögregla þau úrræði sem þarf til að verja þolendur og ábyrgðin er færð á gerendur. Við ætlum ekki að sætta okkur við að fólk þurfi að lifa í ótta við áreitni eða ofbeldi og erum að senda skýr skilaboð um að slíkt verði tekið alvarlega,“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.

Rafrænu eftirliti má beita þegar einstaklingur sætir nálgunarbanni eða brottvísun af heimili, grunur er um að hann muni brjóta gegn þeim úrræðum og vöktun talin nauðsynleg til að tryggja að úrræðin séu virt. Markmiðið er að auka vernd brotaþola gegn heimilisofbeldi og umsáturseinelti, með hliðsjón af réttindum þess sem sætir eftirlitinu.

Skilyrði þess að viðkomandi sé úrskurðaður í nálgunarbann eða brottvísað af heimili sínu breytast ekki. Þær breytingar verða hins vegar á málsmeðferð að lögreglustjóra er heimilt að taka ákvörðun um nálgunarbann og brottvísun af heimili, og rafrænt eftirlit þegar það á við, óháð því hvort brotaþoli eigi lögheimili í umdæmi viðkomandi lögreglustjóra.

Lögreglu auðveldað að bregðast við brotum

Á undanförnum árum hafa komið upp mál þar sem nálgunarbann og brottvísun af heimili hafa ekki veitt brotaþolum nægileg vernd. Þá eru vísbendingar um að erfitt sé að sanna brot gegn slíkum ákvörðunum. Dæmi eru um að setið hafi verið um fólk árum saman án þess að lögregla hafi haft nægilega skilvirk úrræði til að bregðast við.

Rafrænt eftirlit samhliða nálgunarbanni og brottvísun af heimili felur í sér veruleg tækifæri til að sporna gegn endurteknum brotum gegn nálgunarbanni og brottvísun. Það takmarkar möguleika sakbornings til að nálgast brotaþola, eykur sýnileika slíkra tilrauna, aflar sönnunargagna og bætir þannig sönnunarfærslu komi til brota gegn slíkum ákvörðunum.

Með því að beita rafrænu eftirliti verður lögreglu gert betur kleift að bregðast við brotum þar sem  tilkynningar um þau berast í rauntíma.