18 maí 2026
/
Félags- og húsnæðismálaráðuneytið
Atvinnumál kvenna: 25 verkefni hlutu styrk
Styrkjum til atvinnumála kvenna var úthlutað á dögunum og fengu samtals 25 verkefni styrki að fjárhæð 38 milljónum króna. Að þessu sinni voru konur af erlendum uppruna hvattar til þátttöku og voru 11 af styrkhöfum ársins af erlendum uppruna.
Styrkjum til atvinnumála kvenna hefur verið úthlutað frá árinu 1991 og eru þeir ætlaðir frumkvöðlakonum eða fyrirtækjum í þeirra eigu. Verkefnin skulu vera í meirihlutaeigu kvenna, stjórnað af þeim og fela í sér nýnæmi eða nýsköpun af einhverju tagi.
Dýpi – hafkalkmálning
Styrkirnir voru afhentir í húsnæði Vinnumálastofnunar og hlaut Guðrún Sigríður Ágústsdóttir hæsta styrkinn að þessu sinni en hún fékk 4.000.000 króna styrk til vöruþróunar, launakostnaðar og markaðssetningar vegna verkefnisins Dýpi – hafkalkmálning.
Um er að ræða nýja tegund málningar sem er framleidd úr vottaðri náttúruafurð, kalkþörungum úr Arnarfirði á Vestfjörðum og er að öllu leyti laus við plast- og rotvarnarefni, rakaopin og hefur náttúrulega vörn gegn myglu vegna hás pH-gildis. Hráefnið, kalkþörungar allt að 16 milljón ára gamlir, er tínt, þurrkað og mulið á staðnum.
Styrkhafi er í samvinnu við Sérefni og Stoopen & Meeûs, virtasti framleiðandi steinefnamálningar í Belgíu, tekur þátt í þróun verkefnisins.
Fjölbreytt verkefni
Næsthæstu styrki hlutu eftirfarandi verkefni:
Gerosion fékk styrk að upphæð kr. 3.000.000 króna til vöruþróunar verkefnisins Umhverfisvænt steinlím.
Markmið verkefnisins er að koma á markað íslensku umhverfisvænu sementslausu AlSiment steinlími sem er bindiefni sem þjónar sama tilgangi og sement í byggingariðnaði. Steinlímið mun byggja á íslenskum hráefnum, bæði íslensku bergi og steinefnum og svo úr iðnaðarúrgangi frá íslenskri stóriðju. Umhverfisvænt sementslaust AlSiment steinlím getur þannig verið mikilvægur þáttur í baráttunni gegn loftslagsbreytingum, þar sem Ísland flytur inn til landsins um 200.000 tonn af sementi árlega.
Guðrún Hildur Ragnarsdóttir fékk styrk að upphæð kr. 3.000.000 til vöruþróunar fyrir verkefnið Markaðstól fyrir afþreyingu.
Verkefnið snýst um þróun á Keeps, sem er sjálfvirkur SaaS-vettvangur fyrir ferða- og afþreyingaraðila sem þurfa að halda söluefni sínu til staðar á mörgum dreifileiðum. Keeps býður upp á eitt sameiginlegt, lokað safn fyrir myndir, myndbönd, lýsingar og lykilupplýsingar um ferðir, og dreifir því efni til bókunarkerfa og beinna samskipta við viðskiptavini.
Rakel Hrund Ágústsdóttir fékk styrk að upphæð kr. 3.000.000 til vöruþróunar og markaðssetningar verkefnisins RÁ – jafnvægi og flæði.
Hugmyndin byggir á því að þróa sérhæfða þjónustu fyrir fólk með flóknar áskoranir. Kjarninn í starfseminni er H.A.F Yoga – Holistic Aqua Flow Yoga / í vatni, sem er sérstaklega aðlagað einstaklingum með skerta hreyfigetu og flóknar áskoranir. Starfsemin krefst aukins undirbúnings, samhæfingar við aðstoðarmenn og sveigjanleika í framkvæmd til að tryggja öryggi og gæði þjónustunnar.
Lista yfir alla styrkþega má finna á vefnum Atvinnumál kvenna