22 maí 2026

/

Utanríkisráðuneytið

Ferill aðildarumsóknar Íslands árið 2009 - 2013

{image.Description}
Össur Skarphéðinsson, fyrrv. utanríkisráðherra, János Martonyi, fyrrv. utanríkisráðherra Ungverjalands og fulltrúi ungversku formennsku ráðherraráðs ESB, og Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB. Mynd tekin árið 2010 við upphaf aðildarviðræðna.

Til upplýsingar: Þessi upplýsingamoli var birtur á vef utanríkisráðuneytisins sem hluti af sérstakri upplýsingasíðu sem sett var í loftið í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem fram fór 29. ágúst 2026. Þjóðaratkvæðagreiðslan, sem haldin var á grunni stefnuyfirlýsingar ríkisstjórnarinnar frá 21. desember 2024, fór þannig að 52,8% Íslendinga hafnaði því að aðildarviðræður við Evrópusambandið yrðu teknar upp að nýju. Já sögðu 47,2% kjósenda en þátttaka í atkvæðagreiðslunni var 82,6%.

--------

Aðildarumsókn Íslands er enn í gildi þó hlé hafi verið gert á viðræðum. Fjallað er um stöðu umsóknarinnar í sérstakri greinargerð sem utanríkisráðuneytið vann fyrir utanríkismálanefnd Alþingis í ágúst 2025.

Þar kemur eftirfarandi fram:

  • Ísland sótti um aðild að ESB 17. júlí 2009 með bréfi forsætisráðherra og utanríkisráðherra.
  • Í júní 2010 samþykkti leiðtogaráð ESB einróma að hefja viðræður og veita Íslandi stöðu umsóknarríkis.
  • Vorið 2013 ákvað ríkisstjórn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks að gera hlé á viðræðum.
  • Í mars 2015 sendi utanríkisráðherra bréf til formennskuríkis ESB þar sem talað var um að stöðva aðildarviðræður að fullu og að það væri bjargföst afstaða íslenskra stjórnvalda að ekki skuli líta á Ísland sem umsóknarríki.
  • Tvívegis var lagt upp með að leggja fram þingsályktunartillögu um formlega afturköllun en hvorug hlaut brautargengi og afgreiðslu Alþingis.
  • Talsmaður stækkunarsviðs ESB sagði 15. janúar 2025 að aðildarumsókn Íslands væri enn í gildi þar sem hún hefði aldrei verið formlega afturkölluð.
  • Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, sagði á Íslandi 17. júlí 2025 að sambandið liti svo á að umsókn Íslands væri enn í gildi.
  • Reglugerð ESB frá 2021 um fjárhagslegan stuðning á undan aðild tilgreinir Ísland sem umsóknarríki og staðfestir að umsóknin er í gildi.
  • ESB hefur aldrei litið svo á að Ísland hafi dregið umsókn sína formlega til baka.

Heimild: 

Sérstök greinagerð utanríkisráðuneytisins fyrir utanríkismálanefnd Alþingis, ágúst 2025.

Ítarefni:

Sjá stöðu samningaviðræðna Íslands og ESB árið 2013 þegar hlé var gert á viðræðum (2013).