01 júní 2026

/

Dómsmálaráðuneytið

Alþingi samþykkir nýtt og einfaldara kerfi í stað jafnlaunavottunar

{image.Description}

Alþingi samþykkti í dag frumvarp dómsmálaráðherra þar sem jafnlaunavottun er lögð niður  en nýtt og einfaldara kerfi tekið upp í staðinn. Áfram er lögð mikil áhersla á að tryggja jöfn laun fyrir sömu eða jafn verðmæt störf. 

Ekki hvikað frá markmiðum um launajafnrétti 

Með lögunum er verið að koma til móts við ábendingar frá atvinnulífinu um einföldun en á sama tíma er ekki hvikað frá markmiðum um að sporna gegn launamismunun á grundvelli kyns. 
Ekki verður lengur gerð krafa um jafnlaunavottun eða árlega viðhaldsvottun á jafnlaunakerfi fyrirtækja og stofnana heldur fer skýrslugjöf fram á þriggja ára fresti. 
Atvinnurekendur þurfa því að sýna áfram reglulega og með áreiðanlegum hætti fram á að launakerfi þeirra uppfylli kröfur jafnréttislaga sem er mikilvægur þáttur í því að viðhalda raunverulegu launajafnrétti en með mun einfaldari hætti.   

Nær til fyrirtækja og stofnana með 50 eða fleiri starfsmenn

Nýju lögin gera ráð fyrir að fyrirtæki og stofnanir með 50 starfsmenn eða fleiri skili tilgreindum gögnum til Jafnréttisstofu til að sýna fram á að launasetning þeirra byggi á málefnalegum sjónarmiðum og að þau viðmið sem lögð eru til grundvallar feli ekki í sér kynbundna mismunun. Ráðuneyti þurfa þó að skila inn gögnum, óháð starfsmannafjölda. 

Ef kynbundinn launamunur mælist verður atvinnurekendum gert að skila tímasettri úrbótaáætlun þar sem fram kemur hvernig brugðist verði við og hvernig launamunur verði leiðréttur.

Unnið er að því að koma upp stafrænum lausnum vegna gagnaskila fyrirtækja og stofnana sem Jafnréttisstofa mun hafa umsjón með. 

Öll í sama liði þegar tryggja á jafnrétti á vinnumarkaði

Ráðherra mun meta árangur af nýju löggjöfinni á þriggja ára fresti með launarannsókn auk þess sem framkvæmdar verða reglubundnar viðhorfskannanir um framkvæmd skýrslugjafar um kynbundinn launamun 

„Við erum að einfalda en höldum áfram hátt á lofti markmiði um jöfn laun kynjanna. Atvinnulífið fær nú í hendur einfalda og hagkvæma leið til að sýna fram á kynjajafnrétti innan sinna raða. Það er mikilvægt að við séum öll saman í liði þegar kemur að því að tryggja jafnrétti á vinnumarkaði“ segir Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra.