10 júní 2026
/
Umhverfis-٫ orku- og loftslagsráðuneytið
Menningar-٫ nýsköpunar- og háskólaráðuneytið
Sóknarfæri í sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar
Menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra hafa ákveðið að vinna að sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar í kjölfar jákvæðrar niðurstöðu frumathugunar. Ítrekað hefur verið bent á skörun verkefna stofnananna tveggja, meðal annars í skýrslum Ríkisendurskoðunar.
Stofnanirnar tvær eru ólíkar að stærð og umfangi. Náttúrufræðistofnun er öflug rannsóknar- og þekkingastofnun með um 80 stöðugildi víðsvegar um landið. Náttúruminjasafn Íslands er lítil stofnun með um átta stöðugildi, er höfuðsafn á sviði náttúrufræða og hefur ríkt hlutverk sem slíkt.
Veruleg tækifæri
Í nóvember 2025 skipaði menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra stýrihóp um gerð frumathugunar um sameiningu Náttúruminjasafns Íslands og Náttúrufræðistofnunar. Hópurinn skilaði niðurstöðum í lok mars en skýrsluna má nálgast hér.
Niðurstöður frumathugunarinnar sýna að veruleg tækifæri felast í sameiningu stofnananna. Með henni gæti orðið til öflug og heildstæð þekkingarstofnun um náttúru Íslands sem sameinar rannsóknir, vöktun, varðveislu og miðlun. Slík stofnun myndi styrkja innviði þekkingarsköpunar um íslenska náttúru, efla fræðslu og upplýsingamiðlun til almennings og skólasamfélagsins og styðja við stefnumótun í náttúruvernd, líffræðilegri fjölbreytni og loftslagsmálum.
Á grundvelli þessarar vinnu var ákveðið að hefja formlegan undirbúning að sameiningu stofnananna og vinna að þeim lagabreytingum og öðrum ráðstöfunum sem nauðsynlegar eru til að hún geti orðið að veruleika.
Nýtt húsnæði tekið í notkun
Með sameiningu yrði byggt á styrkleikum beggja stofnana svo að rannsóknir, vísindasöfn og gagnagrunnar styðji enn betur við sýningar-, fræðslu- og miðlunarhlutverk Náttúruminjasafns Íslands sem höfuðsafns á sviði náttúrufræða. Undanfarin ár hefur verið unnið að uppbyggingu nýs sýningar- og fræðsluhúss á Seltjarnarnesi. Með sameiningu yrði sterkari fag- og rekstrargrundvöllur fyrir húsið sem vettvangur öflugs safnastarfs um náttúru Íslands til framtíðar.
Í skýrslunni kemur jafnframt fram að sameiningin geti skilað fjárhagslegum ávinningi með betri nýtingu húsnæðis, innviða og stoðþjónustu, auk þess sem fagleg samlegð stofnananna auki slagkraft þeirra til framtíðar.
Stefnt er að því að kynna áform um nauðsynlegar lagabreytingar í haust en undirbúningur og áætlanagerð er þegar hafinn. Skipuð hefur verið verkefnisstjórn með fulltrúum beggja ráðuneyta, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytis og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytis. Skipunartími er tvö ár og verkefnisstjórn falið að leiða sameininguna til lykta á þeim tíma.
„Með endurskipulagningu á rekstri safnsins og sameiningu við Náttúrufræðistofnun ætlum við okkur að skjóta styrkum stoðum undir rekstur og grunnstarfsemi Náttúruminjasafns Íslands. Það felur meðal annars í sér skýra áætlun um að Náttúruminjasafnið muni opna dyrnar að glæsilegri sýningu í Náttúruhúsi á Nesi, strax á næsta ári. Það verður sannarlega lyftistöng fyrir safnið og það miðlunar- og fræðslustarf sem það stundar, sérstaklega til skólabarna. Með sameiningunni viljum við standa vörð um Náttúruminjasafnið og hlutverk þess sem höfuðsafns á sviði náttúrufræða innan stærri og hagkvæmari rekstrareiningar“, sagði Logi Einarsson menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra.
„Með sameiningu Náttúrufræðistofnunar og Náttúruminjasafns Íslands eignast Íslendingar öfluga og samhæfða þekkingarstofnun náttúruvísinda. Jafnframt treystum við stöðu Náttúruminjasafnsins sem eitt höfuðsafna Íslands og tryggjum sterka tengingu rannsókna, vöktunar og fræðslu. Á tímum hraðra breytinga á loftslagi og náttúru landsins er mikilvægara en nokkru sinni fyrr að efla miðlun vísinda og náttúruþekkingar og gera almenningi, ekki síst börnum og ungu fólki, kleift að kynnast betur þeirri einstöku náttúru sem við berum ábyrgð á að vernda fyrir komandi kynslóðir. Þessi sameining mun líka hjálpa okkur að mæta þeim áskorunum sem loftslagsbreytingar og hnignun líffræðilegrar fjölbreytni fela í sér með því að styðja við betri ákvarðanatöku til framtíðar“, sagði Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.
Frumathugun vegna sameiningar Náttúrufræðistofnunar og Náttúruminjasafns Íslands