29 júní 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

60 ný hjúkrunarrými bætast við á Akranesi – rýmum í bænum fjölgar um 80%

{image.Description}
Áfanganum fagnað. Haraldur Benediktsson, oddviti sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit, Inga Sæland og Steinar Adolfsson, starfandi bæjarstjóri á Akranesi.

Hjúkrunarrýmum á Akranesi fjölgar um 80% þegar nýtt hjúkrunarheimili á Sólmundarhöfða á Skaganum verður tekið í notkun. Samkomulag var í dag undirritað um stækkun hjúkrunar- og dvalarheimilisins Höfða en þar búa í dag 75 manns, þar af tveir í skammtímarýmum. Með tilkomu nýrrar byggingar á Sólmundarhöfðanum bætast 60 hjúkrunarrými við.

Akraneskaupstaður leggur til lóðina og auglýst verður eftir aðila til að hanna og byggja nýja heimilið. Ríkið leigir húsið síðan með leigusamningi til 20-30 ára. Gert er ráð fyrir að verklegar framkvæmdir við heimilið hefjist á næsta ári.

Fjölgun hjúkrunarheimila á Akranesi er hluti af framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila fyrir árin 2026-2030 en samkvæmt henni er ætlunin að taka ríflega 1.500 hjúkrunarrými í notkun fram til ársins 2030. Að framkvæmdum loknum á Akranesi verða alls 135 íbúar á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Höfða.

Mikilvægt skref við að bæta þjónustu við eldra fólk á Vesturlandi

„Við höfum sett málefni eldra fólks í forgang og látum verkin tala. Framkvæmdir eru hafnar eða í undirbúningi vítt og breitt um landið og stækkunin á Höfða er enn einn áfanginn í þeirri uppbyggingu. Þessi mikla viðbót á Akranesi er stórt og mikilvægt skref fyrir Skagamenn og fyrir allt Vesturland. Með 60 nýjum hjúkrunarrýmum getum við betur mætt þörfum eldra fólks á svæðinu og veitt fleiri fjölskyldum það öryggi og þá þjónustu sem þær eiga rétt á,“ segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem einnig fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.

„Akraneskaupstaðar fagnar því að þessi mikilvægi áfangi sé í höfn, enda þörfin brýn og biðlistinn langur. Akraneskaupstaður fyrir sitt leyti leggur áherslu á að áætlun um uppbyggingu gangi eftir þannig að framkvæmdir geti hafist á árinu 2027 og að taka megi heimilið í notkun á árinu 2028 eða fyrri hluta árs 2029,“ segir Steinar Adolfsson, sem er starfandi bæjarstjóri Akraneskaupstaðar.

„Sveitarfélögin Hvalfjarðarsveit og Akraneskaupstaður hafa lengi unnið að stækkun á hjúkrunarheimilinu Höfða, enda rík þörf fyrir stærra heimili og biðlistar stöðugt að lengjast. Áfanginn í dag er því langþráður og við væntum þess að stækkun gangi vel fyrir sig. Það er mikilvægt og afar brýnt. Stækkun um 60 rými er stór áfangi. Þetta er því afar ánægjulegur dagur,“ segir Haraldur Benediktsson, oddviti sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit.

Valdís Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri Höfða, fagnar sömuleiðis samkomulaginu. „Höfði hefur verið einn af hornsteinum samfélagsins á Akranesi frá árinu 1978. Heimilið hefur notið trausts og góðs orðspors í gegnum tíðina, ekki síst vegna starfsfólksins sem hefur í gegnum árin lagt metnað og alúð í að veita íbúum góða og faglega umönnun. Því er það mikið gleðiefni að nú eigi að ráðast í þessa verulegu stækkun sem mun stytta bið eftir hjúkrunarrýmum á Höfða og gera heimilinu kleift að mæta vaxandi þörf í samfélaginu.“

Fjölmargir áfangar víðs vegar um landið

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.

Áfanganum fagnað. Haraldur Benediktsson, oddviti sveitarstjórnar í Hvalfjarðarsveit, Inga Sæland og Steinar Adolfsson, starfandi bæjarstjóri á Akranesi.

  

Inga Sæland og Valdís Eyjólfsdóttir, forstöðumaður Höfða.