01 júlí 2026
/
Fjármála- og efnahagsráðuneytið
Skýrsla starfshóps um breytingar á gildandi fyrirkomulagi launa æðstu embættismanna
Starfshópur fjármála- og efnahagsráðherra um breytingar á gildandi fyrirkomulagi launaákvarðana æðstu embættismanna, sem skipaður var í nóvember 2023, hefur lokið störfum og skilað síðari áfangaskýrslu sem lýtur að launafyrirkomulagi forstöðumanna ríkisstofnana.
Verkefni starfshópsins í þessum hluta var:
- Að leggja mat á gildandi fyrirkomulag launaákvarðana forstöðumanna m.t.t. mögulegra breytinga og þá hvernig því verði vel fyrir komið og í traustu formi til framtíðar.
Gert var ráð fyrir því að starfshópurinn myndi skila af sér tillögum, ábendingum um helstu lagabreytingar sem þær kölluðu á og drögum að frumvarpi í samræmi. Að öðrum kosti myndi starfshópurinn skila tillögum um aðrar leiðir eða ítarlegri greiningu, eftir atvikum.
Í meðfylgjandi skýrslu hópsins er gerð ítarleg grein fyrir mögulegum breytingum á fyrirkomulagi launa- og starfskjaraákvarðana forstöðumanna ríkisstofnana.
Samandregin niðurstaða starfshópsins er:
- Að launafyrirkomulag forstöðumanna ríkisstofnana verði ákveðið í sérstökum lögum um launa- og starfskjör forstöðumanna ríkisstofnana, á sambærilegan hátt og gildir um aðra æðstu embættismenn þjóðarinnar. Eftirfarandi rökstuðningur kemur fram í skýrslunni: „Er þá ekki hvað síst tekið tillit til eðlis þess starfssambands sem er á milli ríkisins og forstöðumanna ríkisstofnana og þess trúnaðarhlutverks sem forstöðumenn gegna og þeirra almannahagsmuna sem þeir gæta. Þá er og haft í huga að ákvörðun launa einstakra forstöðumanna stofnana ríkisins verður alltaf umdeilt og torvelt viðfangsefni“.
- Innfærsla í hið nýja kerfi byggist í meginatriðum á gildandi launaflokkum forstöðumanna.
- Fastlaunakerfi: Hvorki verði gert ráð fyrir að kerfið verði opið fyrir kröfum um breytingar/hækkanir gagnvart ráðuneytum né að laun forstöðumanna taki breytingum vegna tímabundins álags í störfum forstöðumanna.
- Árleg uppfærsla launa: Launin taki reglulegum breytingum í samræmi við fyrirkomulag við uppfærslu launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna, sbr. nýsamþykkt lög um breytingu á ýmsum lögum vegna launa þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna (viðmið uppfærslu launa) nr. 60/2026.
- Við eðlisbreytingar eða verulegar efnisbreytingar í stofnanakerfinu, t.d. við sameiningar stofnana, yrði samhliða lagabreytingum lagt mat á hvort slíkar breytingar leiði til endurskoðunar á launum forstöðumanns.