15 júlí 2026

/

Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Innleiðing gervigreindarlausnar þvert á ríkið

{image.Description}

Þessa dagana er unnið að samræmdri innleiðingu gervigreindartóls Microsoft, Copilot, hjá ríkisstofnunum með það að markmiði að bæta opinbera þjónustu, efla starfsfólk, auka skilvirkni og styðja við ábyrga notkun gervigreindar í opinberri þjónustu. Verkefnið er hluti af sameiginlegu átaki ríkisins til að byggja upp þekkingu, tryggja öryggi og samræma nálgun við nýtingu gervigreindar.

Copilot leyfi eru hluti af nýlegum samningi ríkisins við Microsoft, en samið var til þriggja ára.

Innleiðingin er fyrst og fremst umbreytingarverkefni sem byggir á virkri þátttöku stjórnenda og starfsfólks, markvissri fræðslu og góðri gagna- og aðgangsstýringu. Áhersla er lögð á að ný verkfæri styðji við daglegt starf, bæti gæði vinnu og spari tíma — en komi ekki í stað mannlegrar dómgreindar.

Innleiðing verður stigvaxandi og byggð á þörfum stofnana. Samhliða sem undanfari innleiðingar er unnið að mati á tæknilegu umhverfi, öryggi og gagnastjórnun til að tryggja trausta og ábyrga notkun frá upphafi. Með samningnum hefur verið tryggt að öll gögn séu vistuð innan Evrópu og að öryggi þeirra sé í hæsta öryggisflokki. 

Innleiðing Copilot fer fram í áföngum og verður innleidd í samræmi við undirbúning, þarfir og forgangsröðun stofnana. Nánari upplýsingar um tímasetningar og aðgengi verða birtar á vef Stjórnarráðsins eftir því sem verkefnið þróast.

Umfangsmikil fræðsla um notkun gervigreindar fer í gang í haust. Fræðslan er allt frá byrjendanámskeiðum yfir í viðbótarfræðslu fyrir þau sem vilja hagnýta sér gervigreind í daglegum verkefnum í íslenskri stjórnsýslu.