14 ágúst 2026

/

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið

Heilbrigðisráðuneytið

Stórt framfaraskref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á Höfn – nýtt hjúkrunarheimili vígt

{image.Description}
Frá vígslu nýs hjúkrunarheimilis við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði

Nýtt hjúkrunarheimili var vígt við Skjólgarð á Höfn í Hornafirði í dag. Meðal vígslugesta voru Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra sem leiðir uppbyggingu hjúkrunarrýma, Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og Alma Möller heilbrigðisráðherra.

Með nýju byggingunni verður mikil breyting á aðstöðu íbúa og stigið mikilvægt framfaraskref í uppbyggingu hjúkrunarþjónustu á svæðinu. Húsnæðið stenst allar nútímakröfur sem gerðar eru til hjúkrunarheimila og mun hver íbúi hafa sitt einkarými og allur aðbúnaður verður eins og best verður á kosið. Fram undan er síðari áfangi verkefnisins sem felst í endurbótum á eldra húsnæði heimilisins.

Undirbúningur að uppbyggingu Skjólgarðs á sér nokkurn aðdraganda. Samkomulag milli ríkis og sveitarfélagsins um byggingu nýs hjúkrunarheimilis var undirritað í maí 2018 og í kjölfarið var efnt til hönnunarsamkeppni. Við val á hönnun var meðal annars lögð áhersla á að heimilið yrði vistlegt, að þar yrðu góð rými til útivistar og að horft yrði til framtíðar í tæknilegum lausnum. Jafnframt var lögð áhersla á haganlega útfærslu herbergja, gott vinnuumhverfi starfsfólks, hagkvæmni í rekstri og að nýja byggingin félli vel að umhverfi sínu.

Tillaga BASALT arkitekta og EFLU verkfræðistofu varð hlutskörpust í hönnunarsamkeppninni. Í umsögn dómnefndar kemur fram að tillagan byggi á Eden-hugmyndafræðinni þar sem áhersla er lögð á lífsgæði og vellíðan íbúa. Hönnun hússins tekur jafnframt mið af umhverfinu, núverandi byggð og því einstaka útsýni sem staðsetning Skjólgarðs býður upp á.

Bætt aðstaða fyrir íbúa og starfsfólk

Fyrsta skóflustunga að framkvæmdunum var tekin 20. september 2022. Nýbyggingin sem nú hefur verið tekin í notkun er fyrri áfangi heildarverkefnisins sem miðar að því að stórbæta aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk. Verkefnið felur í sér bæði viðbyggingu við Skjólgarð og umfangsmiklar endurbætur á eldra húsnæði heimilisins. Góð tengsl eru á milli einstakra hluta heimilisins og horft hefur verið til þess að nýta staðsetninguna og útsýnið sem best.

Þegar öllum framkvæmdum lýkur verða þar 30 hjúkrunarrými og þrjú sjúkrarými, auk aðstöðu fyrir sjúkraþjálfun og dagdvöl. Hjúkrunarrýmum mun fjölga um þrjú frá því sem nú er.

Mikilvægur áfangi í hjúkrunarþjónustu á Höfn

„Opnun Skjólgarðs er mikið gleðiefni og mikilvægur áfangi fyrir samfélagið í Hornafirði. Hér hefur verið skapað fallegt og nútímalegt heimili þar sem vellíðan, öryggi og lífsgæði íbúa eru höfð að leiðarljósi, ásamt góðri aðstöðu fyrir starfsfólk. Ég óska íbúum, aðstandendum og starfsfólki innilega til hamingju með þennan merka áfanga og vona að Skjólgarður verði um ókomin ár hlýlegt og gott heimili þar sem mannlíf og samvera fá að blómstra segir Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, sem einnig fer fyrir uppbyggingu hjúkrunarheimila.“

„ Þetta eru langþráð og mikilvæg tímamót. Hér mun fara vel um heimilisfólk. Starfsfólk Skjólgarðs á mikinn heiður skilið fyrir að gera Skjólgarð fyrr og nú að góðu heimili og hvernig þeim hefur tekist að byggja upp notalegan anda hér á heimilinu. Ég vil jafnframt færa verktökum sérstakar þakkir fyrir þeirra góða starf á undanförnum vikum og mánuðum. Þeir tóku við verkefninu í erfiðri stöðu en skiluðu því af sér með miklum sóma. Að lokum vil ég óska íbúum í Hornafirði innilega til hamingju með þessi mikilvægu tímamót“, segir Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar.

„Uppbygging hjúkrunarheimila snýst ekki eingöngu um fermetra eða fjölda rýma. Hún snýst um heimili fólks og að einstaklingar sem þurfa á sólarhringsþjónustu að halda búi við öryggi og haldi reisn í aðstöðu sem mætir þörfum þeirra. Ég óska íbúum Skjólgarðs, fjölskyldum þeirra og starfsfólkinu innilega til hamingju með þetta fallega heimili. Megi nýbyggingin verða gott heimili, góður vinnustaður og mikilvægur hluti af samfélaginu hér á Höfn um langa framtíð“, segir Alma Möller, heilbrigðisráðherra.

„Þetta er sérstök ánægjustund sem við upplifum hér í dag, hér vígjum við glæsilegt heimili og færum þannig aðstöðu fyrir íbúa og starfsfólk til nútímahorfs. Ég vil þakka starfsfólki sérstaklega fyrir þolinmæði og þrautseigju á framkvæmdartíma, á ýmsu hefur gengið. Einnig vil ég færa íbúum, aðstandendum og framkvæmdaraðilum kærar þakkir fyrir gott samstarf á undanförnum árum. Nýja heimilið er glæsilegt og útsýnið það besta sem ég hef séð", segir Kristján Sigurðsson, framkvæmdastjóri Vigdísarholts ehf. sem annast rekstur hjúkrunarheimilisins Skjólgarðs á Höfn.

„Það er sérstaklega gleðilegt að sjá ekki bara mikla fjölgun hjúkrunarrýma um allt land heldur einnig stórbætta aðstöðu eins og raunin er hér á Skjólgarði í dag. Ég óska Hornfirðingum öllum til hamingju með þennan dag“, segir Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra.

Fjölmargir áfangar víðs vegar um landið

Í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er áhersla lögð á málefni eldra fólks, þar á meðal fjölgun hjúkrunarrýma.