24. október 2026 /
Dómsmálaráðuneytið

Ellefu verkefni á sviði jafnréttismála hljóta styrk

{image.Description}

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hefur ákveðið að úthluta styrkjum til 11 verkefna á sviði jafnréttismála. Heildarfjárhæð styrkjanna er 10 milljónir króna.

Styrkirnir voru auglýstir í byrjun september. Athygli var vakin á því að áhersla yrði lögð á verkefni og viðburði í þágu baráttunnar gegn kynbundnu ofbeldi.  Alls bárust 25 umsóknir um styrki til ráðuneytisins.

Starfshópur í dómsmálaráðuneytinu fór yfir umsóknir og gerði tillögu um úthlutun til ráðherra.

Eftirtaldir hlutu styrk að þessu sinni:

  • Bjarmahlíð - 500.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Samræming þjónustu þolendamiðstöðvanna. Þróun og innleiðing hópastarfs fyrir þolendur ofbeldis í Bjarmahlíð.
  • Bjarkarhlíð - 500.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Samræming þjónustu þolendamiðstöðva – hópastarf.
  • Samtök um kynheilbrigði - 1.000.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Feður og synir: Jafnrétti pilta og stúlkna þegar kemur að umræðu um kynheilbrigðismál innan heimilisins.
  • Félag kynjafræðikennara - 1.600.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Framtíð íslenskrar karlmennsku: ungt fólk og hugmyndir um karlmennsku og jafnrétti.
  • Suðurhlíð - 500.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Samræming þjónustu þolendamiðstöðvanna.
  • Svala Ísfeld í samstarfi við Háskólann í Reykjavík - 1.800.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Mansal í kynferðislegum tilgangi (kynlífsmansal/vændismansal).
  • Átak og Tabú  hlutu 1.000.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Valdefling fatlaðra kvenna og kvára á vinnumarkaði.
  • Sigurhæðir - 1.000.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Verkefnið ASSYST - stuðningur fyrir fagfólk sem vinnur með þolendum ofbeldis.
  • Samtök kvenna af erlendum uppruna - 600.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Frá konu til konu: Jafningjastuðningur með áherslu á kynbundið ofbeldi og öruggar tilvísunarleiðir.
  • UN  Women Ísland - 1.000.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Rakarastofa (e.Barbershop) þátttaka karla og drengja.
  • Persaland félagið -  500.000 kr. styrk. 
    Heiti verkefnis: Réttindi mín á Íslandi – fræðsla, öryggi og valdefling kvenna af írönskum uppruna.