NOTE: This article is more than 5 years old.
26 október 2011
/
Vinnuvernd og ábyrgð atvinnurekenda
Talið er að 15-20% allra vinnuslysa tengist viðhaldsvinnu og um 10-15% allra banaslysa. Í grein Guðbjarts Hannessonar velferðarráðherra í Fréttablaðinu í dag fjallar hann um ávinninginn af öflugu vinnuverndarstarfi, starfsemi Vinnueftirlitsins og ábyrgð atvinnurekenda. Íslendingar taka þátt í evrópskri vinnuverndarviku sem nú stendur yfir og er haldin undir yfirskriftinni „Öruggt viðhald - Allra hagur“.