NOTE: This article is more than 5 years old.

12 mars 2020

/

LÍN kemur til móts við námsmenn vegna kórónaveirunnar COVID-19

{image.Description}
Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt heimild fyrir sjóðinn til að taka til greina annars konar staðfestingu skóla á ástundun nemenda en vottorðum um loknar einingar. Þetta er gert til þess að bregðast við aðstæðum nemenda sem mögulega geta ekki sinnt námi sínu vegna röskunar á hefðbundnu skólastarfi vegna kórónaveirunnar COVID-19.

„Þessar aðstæður kalla á sveigjanleika af hálfu allra í okkar samfélagi. Ég tel það víst að þessi ákvörðun muni létta áhyggjur margra,“ segir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Nánari upplýsingar má fá hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna, lin.is.