NOTE: This article is more than 5 years old.

16 apríl 2020

/

Forsætisráðherra fundar með forsætisráðherra Noregs

{image.Description}
Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, á fjarfundi

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, og  Erna Solberg, forsætisráðherra Noregs, hittust á fjarfundi í dag. Fyrst og fremst var þar rætt um baráttuna gegn COVID-19 og sóttvarnaráðstafanir sem löndin hafa gripið til.

Smitum hefur farið fækkandi í báðum ríkjum en samkomutakmarkanir verða áfram við lýði bæði á Íslandi og í Noregi til að unnt sé að ná fullum tökum á faraldrinum. Þá ræddu þær efnahagslegar ráðstafanir sem ríkin hafa gripið til og horfur í efnhagsmálum. Að lokum ræddu þær mikilvægi norræns samstarfs, ekki síst á hamfaratímum eins og þessum, og nauðsyn þess að Norðurlöndin eigi náið samstarf um næstu skref í baráttunni gegn faraldrinum.