NOTE: This article is more than 5 years old.

08 maí 2020

/

Öllum leigubifreiðastjórum gert kleift að leggja inn atvinnuleyfi sitt

{image.Description}
Mynd/Pexels

Leigubifreiðastjórar sem hafa haft atvinnuleyfi skemur en tvö ár munu fá heimild að leggja inn atvinnuleyfi sitt tímabundið samkvæmt nýju frumvarpi sem Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, hefur lagt fram á Alþingi til breytinga á lögum um leigubifreiðar. 

Í gildandi lögum um leigubifreiðar frá 2001 hafa leigubifreiðastjórar heimild til að leggja inn atvinnuleyfi sitt tímabundið en skilyrði er að þeir hafi haft atvinnuleyfi í minnst tvö ár samfleytt. 

Markmið frumvarpsins er að draga úr neikvæðum efnahagslegum áhrifum vegna Covid-19 faraldursins á þann hóp leigubifreiðastjóra sem hafa starfað skemur en tvö ár. Með því að leggja inn leyfið tímabundið geta leigubílstjórar sparað kostnað vegna atvinnuleyfisins, skráð sig atvinnulausa á meðan áhrifa takmarkana vegna Covid-19 gætir og sótt um atvinnuleysisbætur. Margir bílstjórar sem eiga þess kost hafa þegar nýtt sér það úrræði vegna samdráttar á leigubifreiðamarkaði sökum áhrifa COVID-19 faraldursins.

Lagt er til að nýja ákvæðið gildi til ársloka 2020.