NOTE: This article is more than 5 years old.

10 febrúar 2021

/

Sex milljarðar greiddir í tekjufallsstyrki

{image.Description}
Golli

Síðastliðinn mánuð hafa yfir 1.000 rekstraraðilar fengið greidda rúma sex milljarða króna í tekjufallsstyrki vegna heimsfaraldurs kórónuveiru, en alls hafa tugir milljarða verið greiddir í fjölbreyttan stuðning í úrræðum ríkisstjórnarinnar vegna faraldursins.

Tekjufallsstyrkir nýtast fjölmörgum rekstraraðilum sem hafa orðið fyrir verulegu tekjufalli í heimsfaraldrinum og er markmiðið að styðja þau fyrirtæki og einyrkja þar sem tekjufall er meira en 40%.

Skatturinn hefur afgreitt yfir 4.000 umsóknir vegna tekjufalls- og lokunarstyrkja og stuðnings við fyrirtæki við greiðslu launa á uppsagnarfresti, en búið er að greiða út styrki fyrir um 85% umsókna um tekjufallsstyrki.

Lítil fyrirtæki í miklum meirihluta

Síðustu mánuði hafa á fjórða þúsund rekstraraðilar og tugþúsundir einstaklinga nýtt sér ýmis úrræði stjórnvalda sem eru á annan tug talsins – styrki, lán, gjaldfresti og annan stuðning.

Yfirgnæfandi meirihluti fyrirtækja sem nýttu sér úrræði stjórnvalda vegna faraldursins árið 2020 voru með tíu launamenn eða færri. Þannig voru þau um 82% þeirra sem nýttu úrræðin, alls rúmlega 2.500 fyrirtæki. Markmið stuðnings við fyrirtæki er að verja störf eins og kostur er auk þess að skapa öfluga viðspyrnu þegar faraldrinum sleppir.