06 september 2023

/

Ársskýrsla kærunefndar jafnréttismála 2022 komin út

{image.Description}
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristín Benediktsdóttir, formaður kærunefndar jafnréttismála.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Kristín Benediktsdóttir, formaður kærunefndar jafnréttismála, funduðu í gær þar sem formaður kærunefndar kynnti forsætisráðherra ársskýrslu nefndarinnar fyrir árið 2022.

Skýrslunni er skilað til ráðherra í samræmi við lög nr. 151/2020, um stjórnsýslu jafnréttismála, en í henni er farið yfir starfsemi nefndarinnar, málafjölda og niðurstöður, málsmeðferðartíma og aðrar tölfræðiupplýsingar vegna ársins 2022.

Skýrslan er gefin út með rafrænum hætti og má lesa hér